{"id":1048,"date":"2026-09-10T21:35:12","date_gmt":"2026-09-10T21:35:12","guid":{"rendered":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/?p=1048"},"modified":"2026-09-10T21:41:23","modified_gmt":"2026-09-10T21:41:23","slug":"stjornvold-thurfa-ad-tala-skyrar-um-ets","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/stjornvold-thurfa-ad-tala-skyrar-um-ets\/","title":{"rendered":"Stj\u00f3rnv\u00f6ld \u00feurfa a\u00f0 tala sk\u00fdrar um ETS"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0skiptakerfi ESB me\u00f0 losunarheimildir (<a href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/loftslagsmal\/article\/lykilstadreyndir-um-ets\/\">ETS<\/a>) hefur veri\u00f0 nokku\u00f0 til umr\u00e6\u00f0u a\u00f0 undanf\u00f6rnu, me\u00f0al annars \u00ed a\u00f0draganda n\u00fdafsta\u00f0innar \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slu um a\u00f0ildarvi\u00f0r\u00e6\u00f0ur vi\u00f0 ESB. \u00c1st\u00e6\u00f0a er til a\u00f0 beina kastlj\u00f3sinu \u00e1fram a\u00f0 ETS, \u00fev\u00ed a\u00f0 um mi\u00f0jan j\u00fal\u00ed sl. kynnti framkv\u00e6mdastj\u00f3rn ESB till\u00f6gu a\u00f0 umfangsmiklum breytingum \u00e1 kerfinu sem \u00fatlit er fyrir a\u00f0 muni hafa veruleg \u00e1hrif \u00e1 \u00cdslandi. Breytingartillagan er n\u00fa til umfj\u00f6llunar hj\u00e1 stofnunum ESB og er stefnt a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00e1 samkomulagi um breytingar \u00e1 kerfinu \u00e1 fyrri hluta n\u00e6sta \u00e1rs.<\/p>\n\n\n\n<h6 class=\"wp-block-heading\"><strong>ETS sn\u00fdst um fleira en flug<\/strong><\/h6>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r \u00e1 landi hefur umfj\u00f6llun um ETS a\u00f0 miklu leyti sn\u00faist um kostna\u00f0 vegna losunarheimilda \u00ed flugi og hagsmuni af tengiflugi milli Evr\u00f3pu og Nor\u00f0ur-Amer\u00edku. \u00cd sameiginlegri <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/efst-a-baugi\/frettir\/stok-frett\/2026\/07\/17\/Framkvaemdastjorn-ESB-fellst-a-rok-Islands-Serlausn-vegna-flugs-framlengd-til-2030\/\">fr\u00e9tt \u00feriggja r\u00e1\u00f0uneyta<\/a> um \u00e1\u00f0urnefnda breytingartill\u00f6gu framkv\u00e6mdastj\u00f3rnarinnar var til d\u00e6mis n\u00e6r eing\u00f6ngu fjalla\u00f0 um fyrirhuga\u00f0a framlengingu til \u00feriggja \u00e1ra \u00e1 s\u00e9rlausn \u00cdslands fyrir millilandaflug. ETS hefur \u00e1hrif \u00e1 rekstur fyrirt\u00e6kja og ver\u00f0 til neytenda og er e\u00f0lilegt a\u00f0 kostna\u00f0ur sem hl\u00fdst af kaupum \u00e1 losunarheimildum, \u00fear \u00e1 me\u00f0al \u00ed flugi, s\u00e9 fyrirfer\u00f0armikill \u00feegar r\u00e6tt er um kerfi\u00f0. Til a\u00f0 meta \u00fe\u00fd\u00f0ingu ETS fyrir \u00cdsland ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 a\u00f0 horfa \u00e1 m\u00e1li\u00f0 \u00ed st\u00e6rra samhengi, \u00fear \u00e1 me\u00f0al hva\u00f0a markmi\u00f0um kerfinu er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 og hva\u00f0a tekjur renna til \u00cdslands vegna \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed \u00fev\u00ed. Sko\u00f0a \u00fearf samspil vi\u00f0 a\u00f0ra l\u00f6ggj\u00f6f og stefnum\u00e1l stj\u00f3rnvalda, svo sem \u00e1 svi\u00f0i orkuskipta, orku\u00f6ryggis, samkeppnish\u00e6fni, atvinnuuppbyggingar, n\u00fdsk\u00f6punar og erlendra fj\u00e1rfestinga. \u00cd \u00fev\u00ed sambandi \u00fearf a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 ETS er ekki einangru\u00f0 loftslagsa\u00f0ger\u00f0 heldur hluti af langt\u00edmastefnu ESB \u00ed orku- og loftslagsm\u00e1lum. S\u00fa stefna skiptir miklu m\u00e1li h\u00e9r \u00e1 landi \u00fear sem h\u00fan fl\u00e9ttast inn \u00ed fj\u00f6lda lagager\u00f0a sem \u00cdsland er bundi\u00f0 af \u00e1 grundvelli EES-samningsins.<\/p>\n\n\n\n<h6 class=\"wp-block-heading\"><strong>Fj\u00e1rm\u00f6gnun orkuskipta og t\u00e6kni\u00fer\u00f3unar<\/strong><\/h6>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Grunnhugsunin a\u00f0 baki ETS er einf\u00f6ld. \u00deak er sett \u00e1 heildarlosun fr\u00e1 tilteknum geirum og losunin ver\u00f0l\u00f6g\u00f0, \u00feannig a\u00f0 fyrirt\u00e6ki hafi hvata til a\u00f0 draga fyrst \u00far henni \u00fear sem h\u00e6gt er a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 me\u00f0 sem \u00f3d\u00fdrustum h\u00e6tti. Me\u00f0 t\u00edmanum hefur aukin \u00e1hersla hins vegar veri\u00f0 l\u00f6g\u00f0 \u00e1 a\u00f0 tekjur sem f\u00e1st af uppbo\u00f0i losunarheimilda \u00ed kerfinu s\u00e9u markvisst n\u00fdttar til a\u00f0 fj\u00e1rmagna orkuskipti og uppt\u00f6ku n\u00fdrrar t\u00e6kni \u00ed orkuframlei\u00f0slu, i\u00f0na\u00f0i og samg\u00f6ngum. \u00deessi \u00fer\u00f3un tengist n\u00e1i\u00f0 annarri l\u00f6ggj\u00f6f og stefnu ESB sem mi\u00f0ar a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 styrkja samkeppnish\u00e6fni evr\u00f3psks atvinnul\u00edfs, auka orku\u00f6ryggi og draga \u00far \u00fe\u00f6rf fyrir innflutt jar\u00f0efnaeldsneyti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tillaga framkv\u00e6mdastj\u00f3rnarinnar fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed j\u00fal\u00ed felur \u00ed s\u00e9r st\u00f3r skref \u00ed \u00feessa \u00e1tt. Gert er r\u00e1\u00f0 fyrir n\u00fdrri fj\u00e1rm\u00f6gnunarlei\u00f0 sem fr\u00e1 \u00e1rinu 2028 er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 beina 100 millj\u00f6r\u00f0um evra til verkefna sem draga \u00far losun fr\u00e1 i\u00f0na\u00f0i. Einnig er lagt til a\u00f0 umtalsver\u00f0um fj\u00e1rmunum ver\u00f0i vari\u00f0 til kaupa \u00e1 varanlegri kolefnisbindingu \u00e1 t\u00edmabilinu 2031\u20132040. \u00de\u00e1 hefur tillagan a\u00f0 geyma \u00edtarlegri kr\u00f6fur en \u00e1\u00f0ur um r\u00e1\u00f0st\u00f6fun uppbo\u00f0stekna, \u00e1framhaldandi stu\u00f0ning vi\u00f0 n\u00fdsk\u00f6pun og t\u00e6kni\u00fer\u00f3un gegnum N\u00fdsk\u00f6punarsj\u00f3\u00f0inn og fyrir\u00e6tlanir um verulegan stu\u00f0ning vi\u00f0 notkun sj\u00e1lfb\u00e6rs eldsneytis \u00ed flugi og siglingum.<\/p>\n\n\n\n<h6 class=\"wp-block-heading\"><strong>T\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00cdslandi<\/strong><\/h6>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef \u00feessar breytingar ver\u00f0a a\u00f0 veruleika g\u00e6tu \u00fe\u00e6r skapa\u00f0 margv\u00edsleg t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00cdslandi, ekki a\u00f0eins fyrir st\u00f3ri\u00f0jufyrirt\u00e6ki, flugrekendur og skipaf\u00e9l\u00f6g heldur einnig fyrir fyrirt\u00e6ki sem \u00fer\u00f3a lausnir til a\u00f0 draga \u00far losun, framlei\u00f0a vetni, rafeldsneyti e\u00f0a anna\u00f0 sj\u00e1lfb\u00e6rt eldsneyti, fanga kold\u00edox\u00ed\u00f0 fr\u00e1 i\u00f0na\u00f0i e\u00f0a \u00far andr\u00famslofti, vinna a\u00f0 ni\u00f0urd\u00e6lingu og geymslu kold\u00edox\u00ed\u00f0s e\u00f0a byggja upp innvi\u00f0i fyrir orkuskipti, til d\u00e6mis \u00e1 flugv\u00f6llum og \u00ed h\u00f6fnum. Breytingarnar g\u00e6tu jafnframt skapa\u00f0 aukin t\u00e6kif\u00e6ri til \u00fatflutnings \u00e1 \u00edslenskri t\u00e6kni og \u00feekkingu \u00e1 \u00feessum svi\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Umfj\u00f6llun um ETS \u00e6tti af \u00feessum s\u00f6kum me\u00f0al annars a\u00f0 beinast a\u00f0 \u00fev\u00ed hvernig \u00cdsland getur n\u00fdtt hvata, styrkjam\u00f6guleika og \u00f6nnur t\u00e6kif\u00e6ri sem fylgja \u00fer\u00f3un kerfisins og tengdra reglna EES-samningsins. N\u00e6sta skref stj\u00f3rnvalda hl\u00fdtur a\u00f0 vera a\u00f0 leggja heildst\u00e6tt mat \u00e1 \u00fe\u00fd\u00f0ingu till\u00f6gunnar fyrir \u00edslenska hagsmuni og skapa vettvang fyrir uppl\u00fdsta umr\u00e6\u00f0u um hana. Nefna m\u00e1 a\u00f0 norsk stj\u00f3rnv\u00f6ld kynntu till\u00f6guna opinberlega strax \u00ed j\u00fal\u00ed og \u00f3sku\u00f0u eftir ums\u00f6gnum almennings og hagsmunaa\u00f0ila. \u00deessum ums\u00f6gnum er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 n\u00fdtast stj\u00f3rnv\u00f6ldum \u00fear \u00ed landi vi\u00f0 a\u00f0 m\u00f3ta afst\u00f6\u00f0u Noregs me\u00f0an l\u00f6ggjafarferli\u00f0 innan ESB stendur enn yfir. Ekki ver\u00f0ur s\u00e9\u00f0 a\u00f0 samb\u00e6rileg kynning e\u00f0a samr\u00e1\u00f0 hafi fari\u00f0 fram h\u00e9r \u00e1 landi.<\/p>\n\n\n\n<h6 class=\"wp-block-heading\"><strong>\u00c1 brattann a\u00f0 s\u00e6kja<\/strong><\/h6>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enginn vafi leikur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00cdsland \u00fearf a\u00f0 her\u00f0a verulega \u00e1 a\u00f0ger\u00f0um \u00ed loftslagsm\u00e1lum. \u00c1rangurinn hinga\u00f0 til er langt fr\u00e1 settum markmi\u00f0um og <a href=\"https:\/\/uos.is\/frettir\/losun-islands-2024-og-framtidarhorfur\">n\u00fdjustu t\u00f6lur fr\u00e1 \u00e1rinu 2024<\/a> s\u00fdna a\u00f0 losun j\u00f3kst milli \u00e1ra \u00ed \u00f6llum meginflokkum. Samanlagt hefur samf\u00e9lagslosun, \u00fe.e. losun fr\u00e1 vegasamg\u00f6ngum, landb\u00fana\u00f0i, fiskiskipum, me\u00f0h\u00f6ndlun \u00fargangs o.fl., dregist saman um 7,7% fr\u00e1 \u00e1rinu 2005, sem er t\u00f6luvert l\u00e6gra hlutfall en \u00ed n\u00e1grannar\u00edkjunum og \u00f3ralangt fr\u00e1 41% markmi\u00f0inu \u00ed <a href=\"https:\/\/unfccc.int\/sites\/default\/files\/2025-09\/Icelands%20NDC%202030%20-%20Revision.pdf\">landsframlagi \u00cdslands gagnvart Par\u00edsarsamningnum<\/a> til 2030. Orkuskipti hafa jafnframt gengi\u00f0 h\u00e6gar en a\u00f0 var stefnt.<\/p>\n\n\n<div id=\"highcharts-jRMfac6lc\"  class=\"highcharts-jRMfac6lc\"><script src=\"https:\/\/app.everviz.com\/inject\/jRMfac6lc\/\" defer=\"defer\"><\/script><\/div>\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00feessu lj\u00f3si vekur athygli a\u00f0 samkv\u00e6mt n\u00fdkynntu fj\u00e1rlagafrumvarpi r\u00edkisstj\u00f3rnarinnar er gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 framl\u00f6g til Loftslags- og orkusj\u00f3\u00f0s ver\u00f0i skorin ni\u00f0ur um 3,2 milljar\u00f0a kr\u00f3na \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri. \u00deetta felur \u00f3neitanlega \u00ed s\u00e9r nokku\u00f0 \u00f3v\u00e6nt skilabo\u00f0 um forgangsr\u00f6\u00f0un stj\u00f3rnvalda, ekki s\u00edst \u00ed lj\u00f3si v\u00edsbendinga \u00far n\u00fdlegri \u00e1rssk\u00fdrslu sj\u00f3\u00f0sins um a\u00f0 styrkt verkefni skili b\u00e6\u00f0i samdr\u00e6tti \u00ed losun og verulegum efnahagslegum \u00e1vinningi af minni orku- og ol\u00edunotkun. Ni\u00f0urskur\u00f0urinn vir\u00f0ist ganga \u00ed \u00fever\u00f6fuga \u00e1tt vi\u00f0 or\u00f0 J\u00f3hanns P\u00e1ls J\u00f3hannssonar loftslagsr\u00e1\u00f0herra fr\u00e1 \u00fev\u00ed <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/efst-a-baugi\/frettir\/stok-frett\/1-5-gradu-hlynun-ordin-oumflyjanleg-en-enntha-haegt-ad-takmarka-skadann\">\u00ed li\u00f0inni viku<\/a> um a\u00f0 \u00fe\u00f6rf s\u00e9 \u00e1 auknum krafti vi\u00f0 a\u00f0 draga \u00far losun og a\u00f0 n\u00fa \u00feurfi \u201eeinfaldlega a\u00f0 gera meira, hra\u00f0ar\u201c.<\/p>\n\n\n\n<h6 class=\"wp-block-heading\"><strong>\u00de\u00f6rf \u00e1 sk\u00fdrari stefnu og skilabo\u00f0um<\/strong><\/h6>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">D\u00e6mi\u00f0 \u00far fj\u00e1rlagafrumvarpinu er a\u00f0eins eitt af m\u00f6rgum sem varpa lj\u00f3si \u00e1 \u00fe\u00f6rfina fyrir sk\u00fdrari og tr\u00faver\u00f0ugri stefnu og uppl\u00fdsingagj\u00f6f stj\u00f3rnvalda \u00ed loftslagsm\u00e1lum. Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fer\u00f3un losunar, umfang verkefnisins og \u00fe\u00e1 hagsmuni sem eru \u00ed h\u00fafi hefur opinber umr\u00e6\u00f0a um sl\u00e6ma st\u00f6\u00f0u m\u00e1laflokksins veri\u00f0 merkilega l\u00edtil, b\u00e6\u00f0i af h\u00e1lfu stj\u00f3rnvalda og \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum. Lj\u00f3st er a\u00f0 gera \u00fearf miklu meiri kr\u00f6fur til stj\u00f3rnvalda um a\u00f0 sk\u00fdra fyrir almenningi og hagsmunaa\u00f0ilum hvert \u00cdsland stefnir, hva\u00f0 \u00fearf til a\u00f0 n\u00e1 settum markmi\u00f0um og uppfylla kr\u00f6fur EES-samningsins, hva\u00f0a fj\u00e1rfestingar og innvi\u00f0i \u00fea\u00f0 kallar \u00e1 og hvernig virkja \u00e1 einkaa\u00f0ila til samstarfs og a\u00f0ger\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 skortir enn raunh\u00e6fa stefnu um opinbera fj\u00e1rm\u00f6gnun loftslagsa\u00f0ger\u00f0a, \u00fear \u00e1 me\u00f0al r\u00e1\u00f0st\u00f6fun tekna r\u00edkisins af uppbo\u00f0i ETS-heimilda, og meira gagns\u00e6i um b\u00e6\u00f0i fj\u00e1rframl\u00f6g \u00far r\u00edkissj\u00f3\u00f0i og hva\u00f0a \u00e1rangri \u00feau skila. \u00cd \u00fev\u00ed samhengi er vert a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fe\u00e1 umtalsver\u00f0u fj\u00e1rmuni, um \u00fea\u00f0 bil \u00ferj\u00e1 milljar\u00f0a kr\u00f3na, sem r\u00edkissj\u00f3\u00f0ur ver\u00f0ur af \u00e1rlega vegna eftirgjafar ETS-tekna. \u00dea\u00f0 sk\u00fdrist annars vegar af fyrrnefndri <a href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/nokkur-ord-um-serlausn-i-flugi\/\">s\u00e9rlausn \u00ed flugi<\/a> sem gerir r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00edslenska r\u00edki\u00f0 \u00fatvegi flugrekendum \u00f3keypis losunarheimildir upp a\u00f0 tilteknu marki og hins vegar af \u00e1kv\u00f6r\u00f0un stj\u00f3rnvalda um a\u00f0 n\u00fdta svokalla\u00f0an <a href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/island-heldur-afram-ad-afsala-ser-milljardatekjum-af-solu-losunarheimilda\/\">ETS-sveigjanleika<\/a> til a\u00f0 draga \u00far skuldbindingum um samdr\u00e1tt samf\u00e9lagslosunar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tillaga framkv\u00e6mdastj\u00f3rnarinnar um breytingar \u00e1 ETS s\u00fdnir loks a\u00f0 br\u00fdnt er a\u00f0 b\u00faa \u00edslenskt atvinnul\u00edf betur undir fyrirsj\u00e1anlega \u00fer\u00f3un evr\u00f3pskra reglna \u00e1 svi\u00f0i loftslags- og orkum\u00e1la, me\u00f0al annars stigvaxandi kr\u00f6fur um notkun sj\u00e1lfb\u00e6rs eldsneytis \u00ed flugi og siglingum. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 leggja megin\u00e1herslu \u00e1 undan\u00fe\u00e1gur og s\u00e9rlausnir \u00e6tti hagsmunag\u00e6sla stj\u00f3rnvalda \u00ed r\u00edkari m\u00e6li a\u00f0 beinast a\u00f0 t\u00e6kif\u00e6rum, hv\u00f6tum og n\u00fdjum m\u00f6rku\u00f0um sem fylgja yfirstandandi \u00fer\u00f3un innan ESB. S\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst \u00fearf a\u00f0 li\u00f0ka fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edslenskt atvinnul\u00edf horfi ekki \u00e1 \u00feessa \u00fer\u00f3un af hli\u00f0arl\u00ednunni heldur taki virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed henni.<\/p>\n\n\n\n<pre class=\"wp-block-preformatted\"><em>Reykjav\u00edk 10.9.2026. Hrafnhildur Bragad\u00f3ttir. Greinin birtist fyrst \u00e1 visir.is. H\u00fan er birt h\u00e9r l\u00edtillega breytt og myndskreytt.<\/em><\/pre>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>ETS-kerfi\u00f0 sn\u00fdst um fleira en losunarheimildir \u00ed flugi og stj\u00f3rnv\u00f6ld \u00feurfa me\u00f0al annars a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um t\u00e6kif\u00e6ri sem geta fylgt \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00cdslands \u00ed \u00fev\u00ed, ekki bara undan\u00fe\u00e1gur og s\u00e9rlausnir.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":1049,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-1048","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-greinar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1048","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1048"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1048\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1062,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1048\/revisions\/1062"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1049"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1048"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1048"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/greinar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1048"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}