Himinnoghaf.is — Mælaborð: Losun gróðurhúsalofttegunda
Landsbókhald Íslands inniheldur upplýsingar um losun í 5 flokkum (orka, iðnaður og efnanotkun, landbúnaður, landnotkun og úrgangur). Þegar losun er borin saman á milli landa er langoftast miðað við losun án landnotkunar.
Ísland mun uppfylla skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamningnum í samstarfi við ESB og Noreg. Til að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum hefur ESB komið á fót þremur meginkerfum til að draga úr losun: Viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS) sem tekur til losunar frá orkuframleiðslu, þungaiðnaði og flugi, kerfi um skiptingu ábyrgðar á samfélagslosun og landnotkunarkerfið sem tekur til losunar vegna landnotkunar.
Nánari upplýsingar má nálgast hér: himinnoghaf.is/loftslagsmal