{"id":1676,"date":"2017-10-03T03:00:21","date_gmt":"2017-10-03T03:00:21","guid":{"rendered":"https:\/\/himinn.fjarver.is\/mengunsjavar\/?p=1676"},"modified":"2024-10-21T22:22:07","modified_gmt":"2024-10-21T22:22:07","slug":"6-3-manngerdar-uppsprettur-geislamengunar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/2017\/10\/03\/6-3-manngerdar-uppsprettur-geislamengunar\/","title":{"rendered":"6.3 Mannger\u00f0ar uppsprettur geislamengunar"},"content":{"rendered":"<p>Eins og \u00e1\u00f0ur hefur komi\u00f0 fram hafa geislavirk efni veri\u00f0 hluti af n\u00e1tt\u00farulegu umhverfi \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni fr\u00e1 upphafi, en auk \u00feessarar n\u00e1tt\u00farulegu geislunar er n\u00fa a\u00f0 finna \u00ed umhverfinu geislavirk efni sem tilkomin eru vegna athafna manna. \u00dear er einkum um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a mengun vegna kjarnorkuvera, geislavirks \u00fargangs og kjarnorkuvopna. Einnig eru geislavirk efni notu\u00f0 \u00ed l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0ilegum tilgangi. \u00de\u00e1 hafa or\u00f0i\u00f0 nokkur alvarleg kjarnorkuslys \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina. Afdrifar\u00edkust \u00feeirra eru slysi\u00f0 \u00ed Chernobyl-kjarnorkuverinu \u00ed \u00dakra\u00ednu \u00e1ri\u00f0 1986 og slysi\u00f0 \u00ed Fukushima \u00ed Japan \u00e1ri\u00f0 2011.<\/p>\n<h4>6.3.1. Kjarnorkui\u00f0na\u00f0urinn<\/h4>\n<p>\u00c1\u00f0ur en h\u00e6gt er a\u00f0 framlei\u00f0a raforku \u00ed kjarnorkuveri (e\u00f0a geislavirk efni til vopnager\u00f0ar \u00ed kjarnaofni, ef \u00fea\u00f0 er \u00e6tlunin) \u00fearf a\u00f0 vinna \u00faran\u00edum \u00far bergi me\u00f0 n\u00e1muvinnslu, <span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"Berg inniheldur a\u00f0eins mj\u00f6g l\u00edti\u00f0 magn af U-235 sem hentar best \u00ed kjarnaofna, en mun meira af U-238. Til a\u00f0 auka hlutfall U-235 er notu\u00f0 skilvinda til a\u00f0 a\u00f0skilja \u00feessar tv\u00e6r tegundir \u00faran\u00edums \u00e1 grunni mismunandi e\u00f0lis\u00feyngdar. \u00deetta kallast a\u00f0 au\u00f0ga \u00faran\u00edum.\">au\u00f0ga<\/span> \u00fea\u00f0, me\u00f0h\u00f6ndla og koma fyrir \u00ed eldsneytisst\u00f6ngum. Mynd 6.3 s\u00fdnir helstu ferla \u00ed kjarnorkui\u00f0na\u00f0i, fr\u00e1 n\u00e1muvinnslu og eldsneytisger\u00f0 yfir \u00ed raforkuframlei\u00f0slu \u00ed kjarnorkuveri og f\u00f6rgun og\/e\u00f0a endurvinnslu kjarnorku\u00fargangs. Sj\u00e1 m\u00e1 a\u00f0 geislavirkur \u00fargangur fellur til \u00e1 \u00fdmsum st\u00f6\u00f0um \u00ed ferlinu.<\/p>\n<div id=\"attachment_2915\" style=\"width: 1266px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/radioind.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" aria-describedby=\"caption-attachment-2915\" class=\"wp-image-2915 size-full\" src=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/radioind.png\" alt=\"\" width=\"1256\" height=\"880\" srcset=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/radioind.png 1256w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/radioind-300x210.png 300w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/radioind-768x538.png 768w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/radioind-1024x717.png 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 1256px) 100vw, 1256px\" \/><\/a><p id=\"caption-attachment-2915\" class=\"wp-caption-text\">Mynd 6.3. Helstu ferlar \u00ed kjarnorkui\u00f0na\u00f0i.<\/p><\/div>\n<h4>6.3.2. Kjarnorkuver<\/h4>\n<p>\u00cd kjarnorkuverum er framleidd raforka (mynd 6.4). Me\u00f0 <span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"\u00deegar nifteind rekst \u00e1 U-235 myndast 2-3 n\u00fdjar nifteindir sem geta, ef n\u00e6gjanlegt \u00faran\u00edum er til sta\u00f0ar vi\u00f0 r\u00e9ttar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, rekist \u00e1 a\u00f0ra \u00faran\u00edumkjarna. Ef sl\u00edkt gerist er tala\u00f0 ke\u00f0juverkandi kjarnasundrun, sem vi\u00f0heldur s\u00e9r sj\u00e1lfkrafa.\">ke\u00f0juverkandi<\/span> kjarnasundrun \u00faran\u00edums (U-235) myndast orka sem n\u00fdtt er til a\u00f0 hita vatn. Vatni\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 gufu sem kn\u00fdr gufuhverfla og til ver\u00f0ur rafmagn. \u00cd kjarnorkuveri er n\u00e6gjanlegu magni af U-235 komi\u00f0 fyrir \u00ed eldsneytisst\u00f6ngum og \u00feeim komi\u00f0 fyrir \u00ed vatnsba\u00f0i \u00ed kjarnaofninum innan \u00ed <span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"\u00der\u00fdstihylki eru hylki sem h\u00f6nnu\u00f0 eru til a\u00f0 halda lofttegundum e\u00f0a v\u00f6kva vi\u00f0 mun h\u00e6rri \u00fer\u00fdsting en venjulegan loft\u00fer\u00fdsting.\">\u00fer\u00fdstihylki<\/span><\/span>. \u00deegar nifteindir lenda \u00e1 \u00faran\u00edumkjarna klofnar hann og vi\u00f0 \u00fea\u00f0 myndast l\u00e9ttari geislavirkar afur\u00f0ir kjarnasundrunarinnar auk 2-3 nifteinda. \u00de\u00e6r nifteindir sem myndast rekast svo \u00e1 a\u00f0ra \u00faran\u00edumkjarna og ke\u00f0juverkandi kjarnasundrun \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0. Nifteindirnar rekast einnig \u00e1 afur\u00f0ir kjarnasundrunarinnar og til ver\u00f0a enn a\u00f0rar sundrunarafur\u00f0ir. Vi\u00f0 kjarnasundranirnar myndast mikil orka sem hitar vatni\u00f0 og myndar gufu sem kn\u00fdr gufuhverfla. Til a\u00f0 st\u00fdra ferlinu eru nota\u00f0ar st\u00fdristangir og er h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e6ra \u00fe\u00e6r til \u00ed kjarnaofni til a\u00f0 hra\u00f0a og h\u00e6gja \u00e1 ferlinu. Til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va ferli\u00f0 eru st\u00fdristangirnar settar\u00a0<span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"\u00dea\u00f0 eru l\u00edka til ofnar \u00fear sem st\u00fdristangirnar f\u00e6rast ne\u00f0an fr\u00e1 og upp til a\u00f0 h\u00e6gja \u00e1 e\u00f0a st\u00f6\u00f0va ke\u00f0juverkunina.\">alla lei\u00f0 ni\u00f0ur<\/span><\/span> \u00ed kjarnaofninum og gleypa \u00fe\u00e6r \u00fe\u00e1 allar nifteindirnar svo a\u00f0 ke\u00f0juverkunin rofnar. \u00deetta er til d\u00e6mis gert \u00feegar sl\u00f6kkva \u00fearf \u00e1 ofnunum. \u00der\u00fdstihylki\u00f0 og steinsteypt mannvirki\u00f0 utan um kjarnaofninn sem og vatnskerfi\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00feeim tilgangi a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir losun geislavirkra efna \u00fat \u00ed umhverfi\u00f0. \u00deegar sl\u00f6kkt er \u00e1 kjarnaofnum \u00fearf a\u00f0 d\u00e6la vatni um kerfi\u00f0 til a\u00f0 k\u00e6la eldsneytisstangirnar, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 sl\u00f6kkt s\u00e9 \u00e1 ofnunum halda ni\u00f0urbrotshv\u00f6rfin \u00e1fram me\u00f0 tilheyrandi hitamyndun. Ef vatninu er ekki haldi\u00f0 \u00ed hringr\u00e1s ofhitnar \u00fea\u00f0 umhverfis eldsneytisstangirnar og s\u00fd\u00f0ur burt. \u00de\u00e1 er engin k\u00e6ling virk lengur og eldsneytisstangirnar geta br\u00e1\u00f0na\u00f0 og or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 eins konar geislavirkri kviku (e. meltdown) sem getur br\u00e6tt sig \u00ed gegnum b\u00e6\u00f0i \u00fer\u00fdstihylki\u00f0 og hl\u00edf\u00f0arhylki\u00f0 og \u00e1tt \u00feannig grei\u00f0a lei\u00f0 \u00fat \u00ed umhverfi\u00f0. Flest kjarnorkuver n\u00fdta raforku til a\u00f0 halda k\u00e6livatninu \u00ed hringr\u00e1s \u2013 og \u00fea\u00f0 getur leitt til vandr\u00e6\u00f0a eins og kom \u00e1 daginn \u00ed Fukushima \u00e1ri\u00f0 2011.<\/p>\n<div id=\"attachment_2824\" style=\"width: 1210px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.4-Kjarnorka-samsett.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" aria-describedby=\"caption-attachment-2824\" class=\"size-full wp-image-2824\" src=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.4-Kjarnorka-samsett.jpg\" alt=\"\" width=\"1200\" height=\"514\" srcset=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.4-Kjarnorka-samsett.jpg 1200w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.4-Kjarnorka-samsett-300x129.jpg 300w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.4-Kjarnorka-samsett-768x329.jpg 768w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.4-Kjarnorka-samsett-1024x439.jpg 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 1200px) 100vw, 1200px\" \/><\/a><p id=\"caption-attachment-2824\" class=\"wp-caption-text\">Mynd 6.4. Til vinstri: \u00deegar nifteind rekst \u00e1 \u00faran\u00edumkjarna myndast l\u00e9ttari geislavirkar afur\u00f0ir og 2-3 nifteindir sem rekast \u00e1fram \u00e1 a\u00f0ra \u00faran\u00edumkjarna og\/e\u00f0a \u00e1 afur\u00f0ir kjarnasundrunar og enn a\u00f0rar afur\u00f0ir myndast. Til h\u00e6gri: Skemat\u00edsk mynd af kjarnorkuveri.<\/p><\/div>\n<p>\u00deegar eldsneytisstangir hafa veri\u00f0 \u00ed notkun \u00ed 1-2 \u00e1r er magn \u00faran\u00edums or\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 l\u00edti\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 vi\u00f0heldur ekki lengur ke\u00f0juverkandi kjarnasundrun. Eldsneytisst\u00f6ngunum er \u00fe\u00e1 skipt \u00fat fyrir n\u00fdjar. Notu\u00f0u eldsneytisstangirnar innihalda geislavirkar afur\u00f0ir kjarnasundrunarinnar \u00fe.\u00e1 m. pl\u00fat\u00f3n\u00edum, ses\u00edum, stront\u00edum og margt fleira. \u00de\u00e6r eru enn mj\u00f6g geislavirkar og \u00fearf \u00fev\u00ed a\u00f0 geyma \u00fe\u00e6r \u00ed vatni til k\u00e6lingar vi\u00f0 kjarnorkuveri\u00f0 \u00ed marga m\u00e1nu\u00f0i. \u00c1 \u00feeim t\u00edma minnkar geislavirknin talsvert. Eftir stendur geislavirkur \u00fargangur sem er h\u00e6ttulegur \u00ed langan t\u00edma, jafnvel \u00e1r\u00fe\u00fasundir. Ekki hefur enn tekist a\u00f0 leysa \u00fea\u00f0 vandam\u00e1l sem \u00feessi \u00fargangur skapar og oftast er hann geymdur vi\u00f0 kjarnorkuveri\u00f0 \u00e1 me\u00f0an veri\u00f0 er a\u00f0 leita a\u00f0 varanlegri lausn. \u00c1\u00f0ur fyrr var geislavirkum \u00fargangi s\u00f6kkt \u00ed hafi\u00f0 en sl\u00edk me\u00f0fer\u00f0 hefur veri\u00f0 b\u00f6nnu\u00f0 fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>Samingur um varnir gegn mengun hafsins vegna losunar \u00fargangsefna og annarra efna \u00ed \u00fea\u00f0<\/em> (Lund\u00fanarsamningurinn, sj\u00e1 kafla <a href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/2019\/08\/07\/8-3-althjodasamningar-um-mengun-sjavar\/\">8.3<\/a>) t\u00f3k gildi \u00e1ri\u00f0 1975. Stundum er kjarnorku\u00fargangur endurunninn og er hann \u00fe\u00e1 sendur \u00ed kjarnorkuendurvinnslust\u00f6\u00f0. Ein sl\u00edk var t.d. rekin \u00ed Sellafield \u00e1 Englandi.<\/p>\n<h4>6.3.3. Kjarnorkuslysin \u00ed Chernobyl og Fukushima<\/h4>\n<h6><em><span class=\"arrow-pg\"><\/span>Slysi\u00f0 \u00ed Chernobyl<\/em><\/h6>\n<p>A\u00f0fararn\u00f3tt laugardagsins 26. apr\u00edl 1986 var\u00f0 sprenging \u00ed <span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"\u00c1 \u00feessum t\u00edma voru 4 ofnar \u00ed kjarnorkuverinu og 2 \u00ed byggingu. H\u00e6tt var vi\u00f0 byggingu n\u00fdju ofnanna eftir slysi\u00f0 en rafmagn var framleitt \u00ed Chernobyl til \u00e1rsins 2000.\">kjarnaofni nr. 4<\/span><\/span>\u00a0\u00ed kjarnorkuverinu vi\u00f0 <span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"Um 20 km eru fr\u00e1 Chernobyl a\u00f0 landam\u00e6rum Hv\u00edta-R\u00fasslands og r\u00famlega 130 km a\u00f0 h\u00f6fu\u00f0borg \u00dakra\u00ednu, Kiev.\">Chernobyl<\/span> <\/span>\u00ed <span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"\u00dakra\u00edna tilheyr\u00f0i Sov\u00e9tr\u00edkjunum s\u00e1lugu \u00e1 \u00feessum t\u00edma.\">\u00dakra\u00ednu<\/span><\/span>. Kjarnaofnarnir \u00ed Chernobyl voru af ger\u00f0inni RBKM (r. Reaktor Bolshoy Moshchnosty Kanalny) sem nota graf\u00edt til a\u00f0 <span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"H\u00e6gja \u00fearf \u00e1 nifteindum svo \u00fe\u00e6r fari h\u00e6filega hratt til a\u00f0 koma kjarnasundrun af sta\u00f0.\">h\u00e6gja<\/span><\/span> <span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"> \u00e1 nifteindum <\/span>og hafa \u00feann galla a\u00f0 vera \u00f3st\u00f6\u00f0ugir \u00ed rekstri \u00feegar \u00feeir eru keyr\u00f0ir \u00e1 litlu afli. Veri\u00f0 var a\u00f0 pr\u00f3fa hvort h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 k\u00e6la ofn 4 ef kjarnorkuveri\u00f0 yr\u00f0i rafmagnslaust. R\u00f6\u00f0 mistaka og rangra \u00e1kvar\u00f0ana vi\u00f0 pr\u00f3funina, \u00e1samt h\u00f6nnunargalla \u00ed RBKM-kjarnaofninum, leiddi til sprengingarinnar. \u00c1kve\u00f0i\u00f0 var t.a.m. a\u00f0 halda pr\u00f3funinni \u00e1fram \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 <span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"Afli\u00f0 var or\u00f0i\u00f0 of l\u00edti\u00f0.\">\u00e1lagi\u00f0<\/span><\/span> \u00e1 ofninum v\u00e6ri skv. \u00f6ryggisreglum or\u00f0i\u00f0 of l\u00edti\u00f0 til a\u00f0 pr\u00f3funin m\u00e6tti fara fram, auk \u00feess sem sl\u00f6kkt haf\u00f0i veri\u00f0 \u00e1 ney\u00f0arkerfinu. \u00deegar starfsmenn ur\u00f0u \u00feess varir a\u00f0 \u00e1lagi\u00f0 var or\u00f0i\u00f0 of l\u00edti\u00f0 var brug\u00f0ist vi\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00edfa st\u00fdristangirnar alla lei\u00f0 upp \u00ed kjarnaofninum. Vi\u00f0 \u00fea\u00f0 j\u00f3kst \u00e1lagi\u00f0 hins vegar alltof hratt og ofninn ofhitna\u00f0i. Starfsmenn reyndu a\u00f0 sl\u00f6kkva \u00e1 ofninum me\u00f0 <span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"\u00deegar \u00fdtt er \u00e1 ney\u00f0arrofann eiga allar st\u00fdristangirnar a\u00f0 fara ni\u00f0ur og \u00f6ll efnahv\u00f6rf a\u00f0 st\u00f6\u00f0vast sj\u00e1lfkrafa. Vegna h\u00f6nnunargalla j\u00f3kst hins vegar afli\u00f0 \u00ed ofninum gr\u00ed\u00f0arlega \u00e1 augabrag\u00f0i.\">ney\u00f0arrofa<\/span><\/span> en \u00fea\u00f0 var or\u00f0i\u00f0 of seint. Miki\u00f0 magn gufu mynda\u00f0ist og n\u00ed\u00f0\u00feungur hlemmur, sem loka\u00f0i ofninum, lyftist \u00feannig a\u00f0 geislavirk efni komust \u00fat \u00ed umhverfi\u00f0. \u00de\u00e1 komst s\u00farefni \u00ed ofninn og vi\u00f0 \u00fea\u00f0 kvikna\u00f0i \u00ed graf\u00edtinu. \u00deegar gufan komst \u00ed snertingu vi\u00f0 <span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"M\u00e1lmblandan sem eldsneytisstangirnar eru ger\u00f0ar \u00far innihalda zirk\u00f3n\u00edum. \u00deegar vatnsgufa kemst \u00ed snertingu vi\u00f0 zirk\u00f3n\u00edum ver\u00f0ur eftirfarandi efnahvarf og vetni myndast: Zr + 2 H&lt;sub&gt;2&lt;\/sub&gt;O \u2192 ZrO&lt;sub&gt;2&lt;\/sub&gt; + 2 H.\">zirk\u00f3n\u00edum<\/span> <\/span>\u00ed eldsneytisst\u00f6ngunum mynda\u00f0ist vetni sem olli geysilegri sprengingu. Gr\u00ed\u00f0arlegt magn geislavirkra efna komst \u00fear me\u00f0 \u00f3hindra\u00f0 \u00fat \u00ed andr\u00famslofti\u00f0. Eldar brunnu og t\u00f3k marga daga a\u00f0 r\u00e1\u00f0a ni\u00f0url\u00f6gum \u00feeirra. Einn starfsma\u00f0ur versins d\u00f3 samstundis og fleiri fundu fyrir mikilli geislaveiki \u00e1 n\u00e6stu d\u00f6gum. \u00dea\u00f0 sama m\u00e1 segja um f\u00f3lki\u00f0 \u00ed Pripyat \u00fear sem margir starfsmenn kjarnorkuversins bjuggu \u00e1samt fj\u00f6lskyldum s\u00ednum. Sl\u00f6kkvili\u00f0smenn sem kalla\u00f0ir voru \u00fat komu \u00e1n hl\u00edf\u00f0arfatna\u00f0ar \u00e1 sta\u00f0inn. \u00deeir l\u00e9tust allir \u00e1 n\u00e6stu d\u00f6gum e\u00f0a vikum, \u00e1samt nokkrum starfsm\u00f6nnum versins, en samtals l\u00e9tust 30 \u00e1 \u00feessum fyrstu vikum. Vi\u00f0 t\u00f3ku bj\u00f6rgunarst\u00f6rf vi\u00f0 st\u00f3rh\u00e6ttulegar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. \u00cd ofninum h\u00e9ldu um 1.200 tonn af geislavirkri kviku \u00e1fram a\u00f0 brenna vi\u00f0 meira en 5.000\u00b0C og senda geislavirk efni \u00fat \u00ed andr\u00famslofti\u00f0. Kvikan haf\u00f0i myndast \u00fev\u00ed a\u00f0 k\u00e6livatni\u00f0 haf\u00f0i allt gufa\u00f0 upp og sloppi\u00f0 \u00fat \u2013 \u00fear me\u00f0 var engin k\u00e6ling og eldsneyti\u00f0 br\u00e1\u00f0na\u00f0i. Flogi\u00f0 var \u00e1 \u00feyrlum yfir gapandi kjarnaofninn og \u00fdmsum efnum s.s. sandi og b\u00f3rs\u00fdru varpa\u00f0 ni\u00f0ur til a\u00f0 reyna a\u00f0 k\u00e6fa eldinn og st\u00f6\u00f0va \u2013 e\u00f0a alla vega draga \u00far \u2013 losun geislavirkra efna. \u00de\u00e1 var bl\u00fdi varpa\u00f0 ni\u00f0ur til a\u00f0 reyna a\u00f0 draga \u00far hitanum. \u00deyrluflugmenn voru kalla\u00f0ir heim fr\u00e1 v\u00edgst\u00f6\u00f0vunum \u00ed Afganistan til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feessu h\u00e6ttulega verkefni. Geislunin fyrir ofan kjarnaofninn var svo mikil a\u00f0 flugmennirnir fundu fyrir einkennum geislaveiki (\u00f3gle\u00f0i, uppk\u00f6st, ni\u00f0urgangur).<\/p>\n<div id=\"attachment_2683\" style=\"width: 1119px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/chernobylinandout.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" aria-describedby=\"caption-attachment-2683\" class=\"size-full wp-image-2683\" src=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/chernobylinandout.png\" alt=\"\" width=\"1109\" height=\"373\" srcset=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/chernobylinandout.png 1109w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/chernobylinandout-300x101.png 300w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/chernobylinandout-768x258.png 768w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/chernobylinandout-1024x344.png 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 1109px) 100vw, 1109px\" \/><\/a><p id=\"caption-attachment-2683\" class=\"wp-caption-text\">Mynd 6.5. Vinstra megin: Inni \u00ed stj\u00f3rnst\u00f6\u00f0 kjarnaofns 4. H\u00e6gra megin: N\u00fd hl\u00edf\u00f0arbygging til a\u00f0 hindra losun geislavirkra efna fr\u00e1 ofni 4 var tekin \u00ed notkun \u00e1ri\u00f0 2017 (31 \u00e1ri eftir slysi\u00f0).<\/p><\/div>\n<p>H\u00e6tta var \u00e1 a\u00f0 kvikan myndi br\u00e6\u00f0a sig \u00ed gegnum \u00fer\u00fdsti- og hl\u00edf\u00f0arhylkin. Fyrir ne\u00f0an kjarnaofninn haf\u00f0i safnast saman talsvert vatn (sl\u00f6kkvivatn eftir a\u00f0ger\u00f0ir sl\u00f6kkvili\u00f0sins) og ef kvikan hef\u00f0i n\u00e1\u00f0 \u00feanga\u00f0 hef\u00f0i \u00f6nnur sprenging geta\u00f0 \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0, jafnvel enn st\u00e6rri en s\u00fa fyrri. \u00der\u00edr starfsmenn voru \u00fev\u00ed sendir til a\u00f0 hleypa vatninu burt. \u00deeir ur\u00f0u a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0hetjum fyrir viki\u00f0 en li\u00f0u fyrir \u00e1hrif geislunarinnar \u00fea\u00f0 sem eftir var \u00e6vinnar. \u00de\u00e1 voru grafin g\u00f6ng a\u00f0 kvikunni til a\u00f0 k\u00e6la hana ni\u00f0ur. A\u00f0 \u00fev\u00ed verki komu um 10.000 n\u00e1mumenn sem unnu vi\u00f0 \u00f3tr\u00falega erfi\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur: hita, raka, l\u00e1gan s\u00farefnisstyrk og mikla geislavirkni. Einnig var hr\u00f3fla\u00f0 upp hl\u00edf\u00f0arbyggingu yfir kjarnaofn 4 til a\u00f0 draga \u00far geislavirkni \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu svo h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 framlei\u00f0a \u00e1fram rafmagn \u00ed hinum \u00feremur ofnunum. \u00c1\u00f0ur en h\u00e6gt var a\u00f0 reisa hl\u00edf\u00f0arbygginguna \u00feurfti a\u00f0 fjarl\u00e6gja h\u00e1geislavirkt graf\u00edt sem l\u00e1 \u00e1 \u00feaki kjarnaofnsins. Eftir a\u00f0 r\u00f3b\u00f3tar h\u00f6f\u00f0u br\u00e6tt \u00far s\u00e9r vi\u00f0 verki\u00f0 \u00feurfti a\u00f0 f\u00e1 menn til a\u00f0 moka graf\u00edtinu af \u00feakinu. \u00deeir voru kalla\u00f0ir <em>b\u00ed\u00f3r\u00f3b\u00f3tar <\/em>e\u00f0a<em> lifandi v\u00e9lmenni<\/em>. Geislavirknin var svo mikil a\u00f0 hver ma\u00f0ur gat a\u00f0eins veri\u00f0 \u00ed um 45 sek\u00fandur \u00e1 \u00feakinu. \u00de\u00e1 \u00feurfti vi\u00f0komandi a\u00f0 taka s\u00e9r hl\u00e9 fr\u00e1 st\u00f6rfum og a\u00f0rir t\u00f3ku vi\u00f0. Hl\u00edf\u00f0arbyggingin, sem hr\u00f3fla\u00f0 var upp, \u00e1tti eftir a\u00f0 t\u00e6rast \u00e1 n\u00e6stu \u00e1rum og \u00fev\u00ed var hafist handa vi\u00f0 a\u00f0 byggja varanlega hl\u00edf\u00f0arbyggingu fyrir ofninn. S\u00fa risabygging \u00far st\u00e1li og steypu var tilb\u00fain \u00e1ri\u00f0 2017.<\/p>\n<p>A\u00f0 hreinsunar- og bj\u00f6rgunarst\u00f6rfum komu yfir 500.000 manns, mest ungir karlmenn. \u00deeir f\u00f3rnu\u00f0u l\u00edfi s\u00ednu og heilsu fyrir almannaheill. \u00c1 fyrstu vikunum eftir slysi\u00f0 voru um 116.000 \u00edb\u00faar sem bjuggu innan 30 km fr\u00e1 kjarnorkuverinu fluttir burt af sv\u00e6\u00f0inu. \u00deetta samsvarar um 2.800 km<sup>2<\/sup> bannsv\u00e6\u00f0i. \u00c1 n\u00e6stu \u00e1rum var bannsv\u00e6\u00f0i\u00f0 st\u00e6kka\u00f0 \u00ed 4.300 km<sup>2<\/sup> og 200.000 \u00edb\u00faar \u00ed vi\u00f0b\u00f3t fluttir burt. Eftir slysi\u00f0 fj\u00f6lga\u00f0i m.a. f\u00e6\u00f0ingarg\u00f6llum og krabbameinstilfellum \u00ed \u00dakra\u00ednu og Belar\u00fas, einkum \u00ed skjaldkirtli.<\/p>\n<h6><em><span class=\"arrow-pg\"><\/span><\/em><em>Slysi\u00f0 \u00ed Fukushima<\/em><\/h6>\n<p>F\u00f6studaginn 11. mars \u00e1ri\u00f0 2011 rei\u00f0 \u00f6flugur jar\u00f0skj\u00e1lfti yfir Japan. St\u00e6r\u00f0 skj\u00e1lftans var 9 \u00e1 Richter og \u00e1tti hann uppt\u00f6k s\u00edn ne\u00f0ansj\u00e1var r\u00e9tt undan austurstr\u00f6nd\u00a0<span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"Honshu er nafn st\u00e6rstu eyjar Japans. Tokyo h\u00f6fu\u00f0borg Japans er \u00e1 Honshu.\">Honshu<\/span><\/span>. Skj\u00e1lftinn olli gr\u00ed\u00f0arlegri ey\u00f0ileggingu \u00ed Japan, byggingar hrundu og vegir f\u00f3ru \u00ed sundur. Rafmagnslaust var\u00f0 v\u00ed\u00f0a. Um klukkustund s\u00ed\u00f0ar rei\u00f0 yfir Japan allt a\u00f0 39 metra h\u00e1 fl\u00f3\u00f0bylgja. Ey\u00f0ileggingin var\u00f0 enn meiri og fj\u00f6ldi f\u00f3lks d\u00f3 &#8211; fj\u00f6ldi l\u00e1tinna og \u00feeirra sem var sakna\u00f0 var meiri en 20.000.<\/p>\n<p><span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\">Kjarnorkuveri\u00f0 \u00ed <span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"N\u00e1nar tilteki\u00f0 Fukushima Daiichi (daiichi \u00fe\u00fd\u00f0ir n\u00famer 1). Anna\u00f0 kjarnorkuver, Fukushima Daini (daini \u00fe\u00fd\u00f0ir n\u00famer 2), er sta\u00f0sett su\u00f0ur af Fukushima Daiichi, en \u00fear t\u00f3kst me\u00f0 naumindum a\u00f0 koma k\u00e6likerfinu af sta\u00f0 \u00e1\u00f0ur en ska\u00f0i hlaust af.\">Fukushima<\/span><\/span> samanst\u00f3\u00f0 af 6 kjarnaofnum. Ofnar 1-3 voru \u00ed fullum rekstri \u00feegar skj\u00e1lftinn rei\u00f0 yfir, ofn 4 var \u00e1n eldsneytis og sl\u00f6kkt var \u00e1 ofnum 5-6. Vi\u00f0 jar\u00f0skj\u00e1lftann st\u00f6\u00f0va\u00f0ist kjarnorkuveri\u00f0\u00a0<span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"Skynjarar nema jar\u00f0skorpuhreyfingar og setja sj\u00e1lfkrafa ni\u00f0ur st\u00fdristangir til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va ke\u00f0juverkandi kjarnasundrun.\">sj\u00e1lfkrafa<\/span> <\/span>\u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00f6ryggis\u00e1\u00e6tlun. \u00deegar sl\u00f6kkt er \u00e1 kjarnaofnum halda ni\u00f0urbrotshv\u00f6rfin \u00ed eldsneytisst\u00f6ngunum \u00e1fram me\u00f0 tilheyrandi hitamyndun. Eldsneytisstangirnar \u00fearfnast \u00fev\u00ed \u00e1framhaldandi k\u00e6lingar.\u00a0<span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"Fl\u00f3\u00f0bylgjan var 15 m h\u00e1 vi\u00f0 Fukushima.\">Fl\u00f3\u00f0bylgjan<\/span><\/span>, sem rei\u00f0 yfir kjarnorkuveri\u00f0 \u00ed Fukushima, kaff\u00e6r\u00f0i hins vegar d\u00edsilv\u00e9larnar sem s\u00e1u um ney\u00f0ark\u00e6lingu og \u00fear af lei\u00f0andi \u00e1tti engin k\u00e6ling s\u00e9r sta\u00f0. Vegna hitans gufa\u00f0i k\u00e6livatni\u00f0 upp, eldsneytisstangirnar hitnu\u00f0u upp \u00ed 2.300\u00b0C, br\u00e1\u00f0na\u00f0u og myndu\u00f0u geislavirka kviku sem fann s\u00e9r lei\u00f0 ni\u00f0ur \u00far \u00fer\u00fdstihylkinu og ni\u00f0ur \u00e1 steypt g\u00f3lf hl\u00edf\u00f0arhylkisins. Vatnsgufan sem var\u00f0 til \u00feegar k\u00e6livatni\u00f0 gufa\u00f0i upp innih\u00e9lt b\u00e6\u00f0i geislavirk efni (jo\u00f0, ses\u00edum o.fl) sem l\u00e1ku \u00far l\u00f6sku\u00f0um eldsneytisst\u00f6ngunum og vetni sem mynda\u00f0ist \u00feegar gufan komst \u00ed snertingu vi\u00f0 zirk\u00f3n\u00edum. \u00deegar gufu\u00fer\u00fdstingurinn j\u00f3kst opnu\u00f0ust \u00f6ryggislokar og hluti gufunnar streymdi \u00ed k\u00e6livatnsgeyminn. Sm\u00e1m saman j\u00f3kst \u00fer\u00fdstingurinn \u00ed k\u00e6livatnsgeyminum og til a\u00f0 for\u00f0a rofi \u00e1 hl\u00edf\u00f0arhylkinu var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 hleypa gufunni \u00fat. Undir venjulegum kringumst\u00e6\u00f0um hef\u00f0i \u00f6ll gufan \u00e1tt a\u00f0 fara \u00fat um ney\u00f0arlokann en vetni\u00f0 n\u00e1\u00f0i a\u00f0 smj\u00faga um bygginguna vegna leka \u00e1 \u00fdmsum st\u00f6\u00f0um, l\u00edklega vegna skemmda sem ur\u00f0u \u00feegar jar\u00f0skj\u00e1lftinn rei\u00f0 yfir. Vandr\u00e6\u00f0in byrju\u00f0u \u00ed ofni 1. Ofarlega \u00ed byggingu hans hvarfa\u00f0ist vetni\u00f0 vi\u00f0 s\u00farefni og \u00far var\u00f0 vetnissprenging sem sprengdi upp \u00feak byggingarinnar \u00feann 12. mars. \u00dear me\u00f0 komust geislavirk efni \u00fat \u00ed umhverfi\u00f0. \u00deann 14. mars var\u00f0 samb\u00e6rileg sprenging \u00ed ofni 3. Brak \u00far ofni 3 \u00feeyttist vi\u00f0 sprenginguna a\u00f0 ofni 2 og olli skemmdum. \u00dea\u00f0 leiddi til losunar geislavirkra efna \u00fea\u00f0an. Geislavirk kvika mynda\u00f0ist \u00ed \u00f6llum \u00feremur ofnunum. Mest losun geislavirkra efna \u00fat \u00ed andr\u00famslofti\u00f0 hefur veri\u00f0 fr\u00e1 ofni 2 en einnig hefur talsvert magn af geislavirku vatni fr\u00e1 sv\u00e6\u00f0inu borist til sj\u00e1var. \u00deann 15. mars kvikna\u00f0i svo \u00ed ofni 4 vegna vetnis sem haf\u00f0i borist \u00feanga\u00f0 \u00ed gegnum lei\u00f0slu sem var sameiginleg fyrir ofna 3 og 4 (\u00fear var \u00fe\u00f3 ekkert eldsneyti sem gat br\u00e1\u00f0na\u00f0). \u00deegar k\u00e6likerfi ofnanna virku\u00f0u ekki lengur var s\u00fa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un tekin a\u00f0 k\u00e6la ofnana me\u00f0 sj\u00f3. Sl\u00edkt er alls ekki \u00e6skilegt \u00fear sem sj\u00f3rinn er mj\u00f6g t\u00e6randi fyrir allan b\u00fana\u00f0. \u00c1 \u00feessum t\u00edma var \u00fe\u00f3 nau\u00f0synlegt a\u00f0 k\u00e6la ofnana hva\u00f0 sem \u00fea\u00f0 kosta\u00f0i.<\/p>\n<div id=\"attachment_2684\" style=\"width: 1168px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/fukushima.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" aria-describedby=\"caption-attachment-2684\" class=\"size-full wp-image-2684\" src=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/fukushima.png\" alt=\"\" width=\"1158\" height=\"393\" srcset=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/fukushima.png 1158w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/fukushima-300x102.png 300w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/fukushima-768x261.png 768w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/fukushima-1024x348.png 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 1158px) 100vw, 1158px\" \/><\/a><p id=\"caption-attachment-2684\" class=\"wp-caption-text\">Mynd 6.6. Vinstra megin: Geislavirk gufa losnar \u00fat \u00ed andr\u00famslofti\u00f0 \u00ed kj\u00f6lfar vetnissprenginga. H\u00e6gra megin: Tankar me\u00f0 vatni mengu\u00f0u me\u00f0 geislavirkum efnum.<\/p><\/div>\n<p>\u00dear sem k\u00e6likerfi ofnanna l\u00e1gu ni\u00f0ri vanta\u00f0i einnig k\u00e6lingu fyrir nota\u00f0 eldsneyti en eldsneytisstangir me\u00f0 notu\u00f0u eldsneyti voru \u00ed vatnsba\u00f0i vi\u00f0 ofnana (miki\u00f0 magn var vi\u00f0 ofn 4, talsvert vi\u00f0 ofna 2 og 3 en l\u00edti\u00f0 magn vi\u00f0 ofn 1). Vatnsb\u00f6\u00f0 fyrir nota\u00f0 eldsneyti eru \u00e1n nokkurrar yfirbyggingar. Vatni\u00f0 hitna\u00f0i flj\u00f3tt og gufa\u00f0i upp. Til a\u00f0 k\u00e6la nota\u00f0a eldsneyti\u00f0 var vatni varpa\u00f0 \u00far \u00feyrlum og sprauta\u00f0 yfir sv\u00e6\u00f0i\u00f0 me\u00f0 brunasl\u00f6ngum. Vegna mikillar geislavirkni \u00feurftu \u00feyrlurnar reyndar a\u00f0 flj\u00faga \u00ed talsver\u00f0ri h\u00e6\u00f0 yfir ofnana og l\u00edti\u00f0 af vatninu f\u00f3r \u00e1 r\u00e9ttan sta\u00f0. Sm\u00e1m saman komst jafnv\u00e6gi \u00e1 a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. \u00cd j\u00fal\u00ed 2013 var k\u00e6likerfi\u00f0 aftur or\u00f0i\u00f0 virkt og \u00ed desember sama \u00e1r l\u00fdstu jap\u00f6nsk stj\u00f3rnv\u00f6ld \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 svok\u00f6llu\u00f0 <em>k\u00f6ld st\u00f6\u00f0vun<\/em> starfseminnar hafi n\u00e1\u00f0st \u00ed \u00f6llum ofnum versins. Me\u00f0 kaldri st\u00f6\u00f0vun starfseminnar er \u00e1tt vi\u00f0 a\u00f0 hitamyndun hafi minnka\u00f0 n\u00e6gjanlega til a\u00f0 k\u00e6livatni\u00f0 gufi ekki lengur upp. \u00deessum \u00e1rangri n\u00e1\u00f0u starfsmenn Fukushima-versins vi\u00f0 \u00f3tr\u00falega erfi\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, til a\u00f0 byrja me\u00f0 \u00ed myrkri vegna rafmagnsleysis og \u00e1ttu \u00feeir \u00fev\u00ed m.a. erfitt me\u00f0 a\u00f0 lesa \u00e1 m\u00e6la og opna ney\u00f0arloka, auk \u00feess sem sambandsleysi vi\u00f0 umheiminn ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 \u00feeir g\u00e1tu ekki fengi\u00f0 fr\u00e9ttir af \u00fev\u00ed hvernig n\u00e1num \u00e6ttingjum og vinum haf\u00f0i reitt af vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faruhamfarirnar. A\u00f0 auki var geislavirknin \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu h\u00e6ttuleg heilsu. Flestir starfsmenn voru t\u00edmabundi\u00f0 sendir heim vegna geislunarinnar, en eftir ur\u00f0u r\u00famlega\u00a0<span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"\u00deessir r\u00famlega 50 starfsmenn voru kalla\u00f0ir &lt;em&gt;Fukushima50.&lt;\/em&gt;\">50 starfsmenn<\/span> <\/span>\u2013 a\u00f0allega \u00feeir sem eldri voru \u2013 sem t\u00f3kust \u00e1 vi\u00f0 bj\u00f6rgunarst\u00f6rf vi\u00f0 \u00feessar erfi\u00f0u a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. \u00deegar kapphlaupinu vi\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 koma k\u00e6likerfi versins aftur \u00ed gagni\u00f0 var loki\u00f0, vann fj\u00f6ldi f\u00f3lks a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 styrkja varnargar\u00f0a, kortleggja mengun, rykbinda geislavirkt ryk, me\u00f0h\u00f6ndla geislavirkt vatn og reyna a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir frekari losun geislavirkra efna \u00fat \u00ed umhverfi\u00f0 \u00e1 komandi \u00e1rum. Geislavirka vatni\u00f0 \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu hefur veri\u00f0 s\u00e9rstaklega umfangsmiki\u00f0 vandam\u00e1l. Menga\u00f0 vatn rann til a\u00f0 byrja me\u00f0 \u00f3hindra\u00f0 \u00fat \u00ed Kyrrahafi\u00f0, en \u00feetta vatn samanst\u00f3\u00f0 b\u00e6\u00f0i af mengu\u00f0u k\u00e6livatni og grunnvatni sem rann ne\u00f0anjar\u00f0ar fr\u00e1 fj\u00f6llunum fyrir ofan kjarnorkuveri\u00f0. \u00deegar grunnvatnsstraumurinn rennur um l\u00f3\u00f0 kjarnorkuversins mengast hann af geislavirkum sams\u00e6tum \u00far geislavirku kvikunni og annarri mengun \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. \u00ddmislegt hefur veri\u00f0 reynt til a\u00f0 minnka vatnsfl\u00e6\u00f0i\u00f0, m.a. var reynt a\u00f0 koma fyrir \u00edsvegg ne\u00f0anjar\u00f0ar til a\u00f0 minnka grunnvatnsfl\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00e1 l\u00f3\u00f0inni. Komi\u00f0 hefur veri\u00f0 upp b\u00fana\u00f0i sem hreinsar burt \u00feung geislavirk efni, s.s. \u00faran\u00edum, ses\u00edum og stront\u00edum, en \u00fear sem \u00f3m\u00f6gulegt er a\u00f0 hreinsa burt tr\u00edt\u00edum var mengu\u00f0u vatninu safna\u00f0 saman \u00ed t\u00f6nkum sem hr\u00fagu\u00f0ust upp \u00e1 l\u00f3\u00f0inni \u00e1 me\u00f0an veri\u00f0 var a\u00f0 reyna a\u00f0 finna lausn \u00e1 vandanum. \u00cd \u00e1g\u00fast 2023 byrja\u00f0i <span style=\"font-size: 11.5pt; line-height: 107%; font-family: 'Arial',sans-serif; color: #404040; background: white;\"><span class=\"tooltips \" style=\"\" title=\"Tokyo Electric Power Company\">TEPCO<\/span><\/span>, eigandi kjarnorkuversins \u00ed Fukushima, a\u00f0 losa menga\u00f0a vatni\u00f0 \u00fat \u00ed Kyrrahafi\u00f0, \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00e1\u00e6tlun japanskra stj\u00f3rnvalda \u00fear um. Losuninni hefur veri\u00f0 m\u00f3tm\u00e6lt v\u00ed\u00f0a. Nefnd \u00e1 vegum Al\u00fej\u00f3\u00f0akjarnorkum\u00e1lastofnunar hefur reglulegt eftirlit me\u00f0 losuninni. \u00c1 n\u00e6stu \u00e1rum mun \u00feurfa a\u00f0 koma notu\u00f0u eldsneyti fyrir \u00e1 \u00f6ruggum sta\u00f0 og \u00e1 endanum \u00fearf a\u00f0 hreinsa upp geislavirku kvikuna og ganga fr\u00e1 \u00e1 l\u00f3\u00f0inni. Gert er r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feessi verkefni muni taka marga \u00e1ratugi. Um 170.000 \u00edb\u00faar sem bjuggu innan 20 km fr\u00e1 kjarnorkuverinu voru fluttir burt af sv\u00e6\u00f0inu.<\/p>\n<div class=\"info-box\">\n<h6>Onagawa og Fukushima<\/h6>\n<p><a href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/onagawa-kort.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright wp-image-2795 size-thumbnail\" src=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/onagawa-kort-150x150.jpg\" alt=\"\" width=\"150\" height=\"150\" \/><\/a>Onagawa kjarnorkuveri\u00f0 er n\u00e6r uppt\u00f6kum jar\u00f0skj\u00e1lftans sem rei\u00f0 yfir Japan \u00feann 11. mars 2011 en Fukushima. \u00dear var\u00f0 hins vegar ekki meirih\u00e1ttar ska\u00f0i vegna \u00feess a\u00f0 gripi\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 til n\u00e6gjanlegra \u00f6ryggisr\u00e1\u00f0stafana. Hef\u00f0i rekstrara\u00f0ili kjarnorkuversins \u00ed Fukushima byggt h\u00e6rri fl\u00f3\u00f0varnagar\u00f0a, komi\u00f0 varaaflinu fyrir ofar \u00ed byggingunum og komi\u00f0 fyrir b\u00fana\u00f0i til a\u00f0 fjarl\u00e6gja vetni sem getur myndast \u00feegar slys ver\u00f0a \u00ed kjarnorkuverum, eins og Al\u00fej\u00f3\u00f0a kjarnorkustofnunin (IAEA, e. International Atomic Energy Agency) haf\u00f0i m\u00e6lt me\u00f0, hef\u00f0i m\u00e1tt koma \u00ed veg fyrir slys af \u00feessari st\u00e6r\u00f0argr\u00e1\u00f0u. E\u00f0a, eins og \u00fea\u00f0 var or\u00f0a\u00f0 \u00ed sk\u00fdrslu \u00f3h\u00e1\u00f0rar ranns\u00f3knarnefndar um slysi\u00f0 \u00ed Fukushima: \u201eSk\u00fdrsla okkar l\u00fdsir hvernig fj\u00f6ldi mistaka og viljandi vanr\u00e6ksla olli \u00fev\u00ed a\u00f0 kjarnorkuveri\u00f0 \u00ed Fukushima var ekki undirb\u00fai\u00f0 fyrir atbur\u00f0ina sem ur\u00f0u 11. mars. \u00de\u00f3 \u00fea\u00f0 s\u00e9 s\u00e1rt, ver\u00f0ur a\u00f0 vi\u00f0urkennast a\u00f0 \u00feetta slys var framleitt \u00ed Japan (e. Made in Japan). \u00de\u00f3 \u00f3gnv\u00e6nlegir atbur\u00f0ir hafi veri\u00f0 undirr\u00f3tin er ekki h\u00e6gt a\u00f0 l\u00edta \u00e1 slysi\u00f0 \u00ed Fukushima-Daiichi-kjarnorkuverinu sem n\u00e1tt\u00faruhamfarir. \u00deetta voru h\u00f6rmungar af mannav\u00f6ldum; slys sem hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 vera \u2013 og var \u2013 fyrirsj\u00e1anlegt og \u00e1tti a\u00f0 vera m\u00f6gulegt a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir.\u201c<\/p>\n<\/div>\n<h4>6.3.4. Geislavirkt \u00farfelli<\/h4>\n<p>Sem fyrr segir var tveimur kjarnorkusprengjum varpa\u00f0 \u00e1 Japan \u00ed \u00e1g\u00fast \u00e1ri\u00f0 1945. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 v\u00edgb\u00fana\u00f0arkapphlaup og \u00e1 n\u00e6stu \u00e1ratugum voru ger\u00f0ar kjarnorkutilraunir v\u00ed\u00f0a um heim. Flj\u00f3tlega kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 geislavirkar agnir g\u00e1tu flust langar lei\u00f0ir me\u00f0 loftstraumum og borist til jar\u00f0ar sem geislavirkt \u00farfelli langt fr\u00e1 uppruna geislunarinnar. Sprengingarnar ur\u00f0u s\u00edfellt \u00f6flugri og me\u00f0 tilkomu vetnissprengjunnar \u00e1 7. \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar g\u00e1tu geislavirk efni borist h\u00e1tt \u00ed andr\u00famslofti\u00f0 og dreifst um alla j\u00f6r\u00f0ina. Geislavirkt \u00farfelli vegna kjarnorkutilrauna og alvarlegra slysa valda mengun \u00ed sj\u00f3 og \u00e1 yfirbor\u00f0i jar\u00f0ar \u00ed langan t\u00edma.<\/p>\n<p>Geislavirk efni geta borist me\u00f0 loftstraumum jafnvel langar lei\u00f0ir fr\u00e1 upprunasta\u00f0 s\u00ednum. Efnin falla svo \u00fat me\u00f0 \u00farkomu e\u00f0a \u00feurri \u00e1komu. Me\u00f0 \u00feurri \u00e1komu er \u00e1tt vi\u00f0 a\u00f0 mengunarefni falli \u00far andr\u00famslofti og komist \u00ed snertingu vi\u00f0 jar\u00f0veg, vatn, sj\u00f3 e\u00f0a gr\u00f3\u00f0ur vi\u00f0 yfirbor\u00f0 jar\u00f0ar \u00e1n \u00feess a\u00f0 um \u00farkomu s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00deurr \u00e1koma er einkum mikilv\u00e6g \u00feegar um mikla geislavirkni er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Mun meira af geislavirkum efnum fellur til jar\u00f0ar me\u00f0 \u00farkomu en me\u00f0 \u00feurri \u00e1komu. \u00dev\u00ed skipta ve\u00f0ur og vindar miklu m\u00e1li fyrir dreifingu og \u00e1komu geislavirkra efna \u00e1 mismunandi sv\u00e6\u00f0um.<\/p>\n<p>\u00dakra\u00edna, Belar\u00fas og R\u00fassland ur\u00f0u fyrir langmestri mengun vegna slyssins \u00ed Chernobyl. \u00c1hrifa slyssins g\u00e6tti hins vegar einnig um alla Evr\u00f3pu. Fyrstu dagana eftir slysi\u00f0 bl\u00e9su vindar \u00ed nor\u00f0vestur og geislavirka sk\u00fdi\u00f0 barst yfir Skandinav\u00edu. Vegna rigninga ur\u00f0u sum sv\u00e6\u00f0i \u00ed Noregi og Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 fyrir talsver\u00f0ri mengun og enn \u00ed dag hefur h\u00fan t.a.m. \u00e1hrif \u00e1 b\u00e6ndur \u00ed Noregi. \u00c1 sumum sv\u00e6\u00f0um \u00feurfa \u00feeir a\u00f0 gefa skepnum s\u00ednum f\u00f3\u00f0ur af \u00f3mengu\u00f0um sv\u00e6\u00f0um \u00ed \u00e1kve\u00f0inn t\u00edma \u00e1\u00f0ur en d\u00fdrunum er sl\u00e1tra\u00f0 svo a\u00f0 kj\u00f6ti\u00f0 s\u00e9 h\u00e6ft til manneldis. \u00deann 29. apr\u00edl (3 d\u00f6gum eftir slysi\u00f0) snerust vindar \u00feannig a\u00f0 geislavirka sk\u00fdi\u00f0 f\u00f3r yfir Mi\u00f0-Evr\u00f3pu og \u00ed byrjun ma\u00ed barst \u00fea\u00f0 til Frakkland og Bretlands.<\/p>\n<div id=\"attachment_2922\" style=\"width: 1210px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.7-GeislavirktUrfelli.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" aria-describedby=\"caption-attachment-2922\" class=\"size-full wp-image-2922\" src=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.7-GeislavirktUrfelli.png\" alt=\"\" width=\"1200\" height=\"365\" srcset=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.7-GeislavirktUrfelli.png 1200w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.7-GeislavirktUrfelli-300x91.png 300w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.7-GeislavirktUrfelli-768x234.png 768w, https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/wp-content\/uploads\/Mynd6.7-GeislavirktUrfelli-1024x311.png 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 1200px) 100vw, 1200px\" \/><\/a><p id=\"caption-attachment-2922\" class=\"wp-caption-text\">Mynd 6.7. Vinstra megin: Geislavirkt \u00farfelli. Til h\u00e6gri: Magn geislavirks \u00farfellis \u00ed Evr\u00f3pu \u00ed ma\u00ed 1986, stuttu eftir slysi\u00f0 \u00ed Chernobyl.<\/p><\/div>\n<p>Myndband 6.1. s\u00fdnir mat \u00e1 dreifingu geislavirks ses\u00edum eftir kjarnorkuslysi\u00f0 \u00ed Fukushima \u00ed mars 2011. Eins og sj\u00e1 m\u00e1 barst geislavirka sk\u00fdi\u00f0 \u00e1 svipu\u00f0um t\u00edma a\u00f0 Nor\u00f0urskautinu og vesturstr\u00f6nd Bandar\u00edkjanna. Geislavirk efni eftir slysi\u00f0 m\u00e6ldust fyrst \u00e1 \u00cdslandi af \u00f6llum m\u00e6list\u00f6\u00f0vum \u00ed Evr\u00f3pu og h\u00f6f\u00f0u \u00feau einmitt borist yfir nor\u00f0urskauti\u00f0. Ekki var \u00fe\u00f3 um miki\u00f0 magn a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fear sem vindar og geislavirkt \u00farfelli h\u00f6f\u00f0u \u00feynnt mengunina.<\/p>\n<div id=\"wpfp_01c1e8f21b2efd69795ef7e3de0152ed\" data-item=\"{&quot;sources&quot;:[{&quot;src&quot;:&quot;https:\\\/\\\/himinnoghaf.is\\\/mengunsjavar\\\/wp-content\\\/uploads\\\/fukushima_400.mp4&quot;,&quot;type&quot;:&quot;video\\\/mp4&quot;}]}\" class=\"flowplayer no-brand is-splash is-paused skin-slim no-svg fp-slim fp-edgy\" style=\"position:relative; max-width: 640px; max-height: 360px; \" data-ratio=\"0.5625\">\n\t<div class=\"fp-ratio\" style=\"padding-top: 56.25%\"><\/div>\n\t<div class=\"fp-ui\"><noscript>Please enable JavaScript<\/noscript><div class=\"fp-play fp-visible\"><svg class=\"fp-play-sharp-fill\" xmlns=\"http:\/\/www.w3.org\/2000\/svg\" viewBox=\"0 0 100 100\"><defs><style>.fp-color-play{opacity:0.65;}.controlbutton{fill:#fff;}<\/style><\/defs><title>play-sharp-fill<\/title><path class=\"fp-color-play\" d=\"M49.9217-.078a50,50,0,1,0,50,50A50.0564,50.0564,0,0,0,49.9217-.078Z\"\/><polygon class=\"controlbutton\" points=\"73.601 50 37.968 70.573 37.968 29.427 73.601 50\" filter=\"url(#f1)\"\/><\/svg><\/div><div class=\"fp-preload\"><b><\/b><b><\/b><b><\/b><b><\/b><\/div><\/div>\n\n<\/div>\n\n<p style=\"text-align: left;\">Myndband 6.1. Mat \u00e1 dreifingu Cs-137 sem losna\u00f0i fr\u00e1 Fukushima 12.-31. mars 2011 \u2013 mati\u00f0 \u00e1 dreifingunni n\u00e6r til loka apr\u00edl. Litabreytingar \u00ed myndbandinu gefa til kynna a\u00f0 geislavirkni hafi dregist saman 10-falt. Samdr\u00e1tturinn ver\u00f0ur eing\u00f6ngu vegna geislavirks \u00farfellis \u00fear sem helmingunart\u00edmi Cs-137 er of langur til a\u00f0 geislavirkt ni\u00f0urbrot hafi \u00e1hrif \u00e1 svona stuttum t\u00edma.<\/p>\n<p>\u00c1koma geislavirkra efna eftir alvarleg kjarnorkuslys og kjarnorkutilraunir veldur vi\u00f0varandi mengun vi\u00f0 yfirbor\u00f0 jar\u00f0ar. \u00c1hrifin eru tvenns konar. Annars vegar er a\u00f0 um r\u00e6\u00f0a gammageislun sem manneskjur (og d\u00fdr) ver\u00f0a \u00fatsett fyrir. Hins vegar er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a h\u00e6ttu \u00feegar f\u00f3lk innbyr\u00f0ir f\u00e6\u00f0utegundir sem r\u00e6kta\u00f0ar hafa veri\u00f0 \u00e1 mengu\u00f0um sv\u00e6\u00f0um. \u00deessi h\u00e6tta er mun alvarlegri en gammageislunin sem virkar \u00fatvortis \u00e1 l\u00edkamann. Mest h\u00e6tta er af laufgu\u00f0u gr\u00e6nmeti (t.d. gr\u00e6nk\u00e1l, sp\u00ednat) og mj\u00f3lk.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eins og \u00e1\u00f0ur hefur komi\u00f0 fram hafa geislavirk efni veri\u00f0 hluti af n\u00e1tt\u00farulegu umhverfi \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni fr\u00e1 upphafi, en auk \u00feessarar n\u00e1tt\u00farulegu geislunar er n\u00fa a\u00f0 finna \u00ed umhverfinu geislavirk efni sem tilkomin eru vegna athafna manna. \u00dear er einkum <a class=\"more-link\" href=\"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/2017\/10\/03\/6-3-manngerdar-uppsprettur-geislamengunar\/\">Lesa meira&#8230;<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":1751,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[26],"tags":[],"class_list":["post-1676","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-6-geislavirkni"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1676","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1676"}],"version-history":[{"count":54,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1676\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4044,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1676\/revisions\/4044"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1751"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1676"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1676"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/himinnoghaf.is\/mengunsjavar\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1676"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}