Um vefinn
Þetta er fræðsluvefur um losun gróðurhúsalofttegunda og skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum. Vefurinn var unninn með styrk frá Loftslagssjóði.
Höfundur efnis síðunnar er Birna Sigrún Hallsdóttir, umhverfisverkfræðingur. Birna starfaði hjá Umhverfisstofnun í 14 ár og sá þar m.a. um landsbókhald Íslands og skil til skrifstofu loftslagssamningsins, auk þess að gegna lykilhlutverki við innleiðingu viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS) á Íslandi. Birna hefur réttindi til að taka út útreikninga annarra þjóða á losun gróðurhúsalofttegunda og hefur verið hluti af úttektarteymum á vegum loftslagssamningsins sem hafa tekið út bókhald Litháens, Belgíu, Hollands, Írlands, Ítalíu, Grikklands, Nýja-Sjálands, Slóvakíu, Svíþjóðar og Sviss. Birna hóf störf sem ráðgjafi hjá Environice árið 2013 og vann þar í 9 ár. Meðal verkefna Environice á sviði loftslagsmála á þeim tíma má nefna ráðgjöf til fyrirtækja innan ETS, úttekt á innviðum kolefnisjöfnunar á Íslandi, útreikninga á kolefnisspori landshluta og útreikninga á kolefnisspori ýmissa matvæla (t.d. eggja, kjúklinga, lambakjöts og grænmetis).
Sigurður Finnsson, sjálfstætt starfandi á sviði tölvutækni, sá um hönnun og forritun vefsins.
Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur, og Hrafnhildur Bragadóttir, lögfræðingur, lásu efni síðunnar yfir.