×

Fær í 55

Höfundur: Birna Hallsdóttir

Framkvæmdastjórn ESB lagði í júlí 2021 fram aðgerðapakka sem fengið hefur nafnið „Fit for 55“ og kalla mætti Fær í 55 á íslensku. Nafnið er dregið af markmiði ESB um að draga úr losun um a.m.k. 55% árið 2030 miðað við árið 1990, sem er áfangamarkmið í átt að kolefnishlutlausri Evrópu árið 2050. Aðgerðapakkinn var settur saman í kjölfar þess að ESB skilaði uppfærðu landsframlagi til Parísarsamningsins, og samanstendur hann af fjölmörgum gerðum sem breyttu gildandi löggjöf ESB á sviði loftslags- og orkumála, sem og nýjum gerðum sem ætlað er að stuðla að því að loftslagsmarkmið ESB náist. Aðgerðapakkinn undirstrikar stöðu ESB sem leiðandi afls í alþjóðlegri baráttu gegn loftslagsbreytingum og á auk ofangreinds að tryggja að:

  • Umskiptin yfir í lágkolefnahagkerfi verði réttlát og samfélagslega sanngjörn.
  • Að nýsköpun og samkeppnishæfni iðnaðar í ESB sé viðhaldið og styrkt á sama tíma og samkeppnisskilyrði gagnvart rekstraraðilum í löndum utan ESB eru tryggð.

Til að markmið ESB í loftslagsmálum náist þarf samvinnu ESB og aðildarríkja þess. Aðgerðapakkinn inniheldur því – auk breytinga á meginkerfum ESB til að draga úr losun – ýmiss konar regluverk sem styður við aðgerðir aðildarríkjanna heima fyrir. Í pakkanum eru m.a. sett fram uppfærð markmið varðandi losun frá tilteknum geirum og uppsprettum. Hver og ein gerð pakkans felur í sér framlag til heildarstefnu ESB í loftslagsmálum og er mikilvægt að skoða þær í samhengi þar sem þær tengjast innbyrðis. Um er að ræða eftirfarandi gerðir:

  • Breytingar á Markaðsstöðugleikasjóði  ETS-kerfisins (EU ETS market stability reserve).
  • Kerfi um kolefnisgjald á innflutning, ný gerð (Carbon border adjustment mechanism (CBAM)).
  • Samfélagslegi loftslagssjóðurinn, ný gerð (Social climate fund).
  • Breytingar á ETS-tilskipuninni (EU ETS directive).
  • Breytingar á ETS-tilskipuninni varðandi flugrekstur.
  • Tilkynning vegna CORSIA, ný gerð (Notification on CORSIA).
  • Breytingar á koldíoxíðs-losunarstöðlum fyrir fólks- og sendibíla (CO2 emissions standards for cars and vans).
  • Breyting á reglugerð um innviðauppbyggingu vegna óhefðbundinna orkugjafa (Alternative fuel infrastructure regulation).
  • Reglugerð um jöfn skilyrði fyrir sjálfbærar flugsamgöngur, ný gerð (Regulation on ensuring a level playing field for sustainable air transport (kölluð „ReFuelEU Aviation“)).
  • Reglugerð um notkun endurnýjanlegs eldsneytis og lágkolefnaeldsneytis í sjóflutningum, ný gerð (Regulation on the use of renewable and low-carbon fuels in maritime transport (kölluð „FuelEU Maritime“)).
  • Breyting á tilskipun um orkunýtni bygginga (Energy performance of buildings directive).
  • Reglugerð um metan, ný gerð (Methane regulation).
  • Breyting á reglugerð um skiptingu ábyrgðar (Effort sharing regulation (ESR)).
  • Breyting á tilskipun um gas og vetni (Gas and hydrogen directive).
  • Breyting á reglugerð um gas og vetni (Gas and hydrogen regulation).
  • Breyting á tilskipun um endurnýjanlega orku (Renewable energy (RED II)).
  • Breyting á orkunýtnitilskipuninni (Energy efficiency directive).
  • Breyting á tilskipun um orkuskatta (Energy taxation directive).
  • Breyting á reglugerð um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt (LULUCF Regulation).

Eins og fram kemur í kaflanum um Evrópusambandið og loftslagsmál, hefur ESB sett upp þrjú meginkerfi til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda:

  • Viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS) til að draga úr losun vegna orkuframleiðslu, iðnaðar, flugs og siglinga.
  • Kerfi um skiptingu ábyrgðar (ESR) til að draga úr samfélagslosun.
  • Landnotkunarkerfið (LULUCF) til að auka bindingu og draga úr losun vegna landnotkunar.

„Fær í 55“-aðgerðapakkinn leiðir til talsverðra breytinga á þessum þremur kerfum. Hér á eftir verður fjallað nánar um þessar breytingar, auk þess sem fjallað verður stuttlega um breytingar er varða losun frá flugi og millilandasiglingum. Allar tillögur aðgerðapakkans hafa verið samþykktar.

Helstu breytingar á meginkerfum ESB til að draga úr losun. Breytingarnar eru með gulu letri.
Helstu breytingar á meginkerfum ESB til að draga úr losun. Breytingarnar eru með gulu letri.

Breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS)

Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir – eða ETS  – tekur til losunar frá flugi innan EES og staðbundinni starfsemi í orkuframleiðslu og þungaiðnaði (svo sem kolaorkuverum, olíuhreinsistöðvum, framleiðslu málma, framleiðslu sements, o.fl.). Kerfið nær til um 40% losunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Í ETS-kerfinu er sett þak á heildarlosun, losunarheimildir gefnar út í samræmi við þakið og viðskipti leyfð með þær. Þakið, og þar með fjöldi losunarheimilda í kerfinu, lækkar með árunum og þannig næst markmið um samdrátt í losun.

Fyrirtæki innan kerfisins þurfa árlega að standa skil á losunarheimildum í samræmi við losun sína. Hluti losunarheimildanna er boðinn upp af aðildarríkjunum en hluta er úthlutað endurgjaldslaust til fyrirtækja eftir ákveðnum reglum sem taka m.a. mið af sögulegri starfsemi og árangursviðmiðum. Tiltekin starfsemi er talin viðkvæm fyrir kolefnisleka, þ.e. hætta er talin á að slík starfsemi kunni að bregðast við íþyngjandi kröfum um uppgjör á losunarheimildum með því að flytjast til ríkja þar sem ekki eru gerðar sambærilegar kröfur. Til að bregðast við kolefnisleka hefur slík starfsemi til þessa fengið mun hærra hlutfall losunarheimilda úthlutað endurgjaldslaust í kerfinu en fyrirtæki í öðrum greinum.

Í framtíðinni  er gert ráð fyrir að viðskipti með losunarheimildir muni leika enn stærra hlutverk en áður við að ná markmiðum ESB í loftslagsmálum. Helstu breytingar sem fylgja „Fær í 55“-pakkanum eru eftirfarandi:

  • Losun innan kerfisins skal dragast saman um 62% fyrir árið 2030 miðað við árið 2005, í stað 43% áður. Til að ná þessu markmiði er gert ráð fyrir að línulegur samdráttarstuðull (LRF) viðskiptakerfisins verði 4,3% á ári frá 2024 til 2027 og 4,4% á ári frá 2028 til 2030, í stað 2,2% frá 2021 til 2030 áður. Þetta þýðir að losunarheimildum (vegna staðbundinnar starfsemi, flugstarfsemi og sjóflutninga) í kerfinu fækkar um 4,3% á ári frá 2024 til 2027 og um 4,4% á ári frá 2028 til 2030. Til að ná markmiðinu um 62% samdrátt verður losunarheimildum í kerfinu ennfremur fækkað um 90 milljónir árið 2024 og um 27 milljónir árið 2026.
  • Breytingar verða á endurgjaldslausri úthlutun til staðbundinna starfsstöðva í iðnaði. Reglum um árangursviðmið verður breytt til að stuðla að innleiðingu loftslagsvænna tækninýjunga. Gert er ráð fyrir því að árangursviðmið verði endurskoðuð fyrir tímabilið 2026-2030 og þá leitað leiða til að draga enn frekar úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka orkunýtni.
  • Innleitt verður í skrefum nýtt kerfi um kolefnisgjald á innflutning (CBAM). Í þessu felast m.a. mikilvægar breytingar á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til fyrirtækja sem talin eru viðkvæm fyrir kolefnisleka. CBAM-kerfið nær til að byrja með m.a. yfir framleiðslu á járni og stáli, áli, sementi og tilbúnum áburði. Sérstakt kolefnisgjald (kolefnisleiðrétting) verður lagt á innflutning þessara vara inn á EES-svæðið og mun gjaldið taka mið af þeirri losun gróðurhúsalofttegunda sem á sér stað við framleiðslu þeirra, verði á losunarheimildum í ETS og regluverki í viðkomandi framleiðslulandi. Sem fyrr segir hefur starfsemi sem hætt er við kolefnisleka hingað til fengið úthlutað hærra hlutfalli af losunarheimildum endurgjaldslaust. Með CBAM verður endurgjaldslaus úthlutun til starfsstöðva sem framleiða umræddar vörur skert í áföngum með svokölluðum CBAM-stuðli. Úthlutunin verður óbreytt í samræmi við fyrri reglur viðskiptakerfisins til og með 2025, en dregst saman árlega frá og með árinu 2026 og leggst af árið 2034 (sjá mynd Útfösun endurgjaldslausra losunarheimilda (með CBAM-stuðli) og innleiðing CBAM-vottorða). Útfösun endurgjaldslausra losunarheimilda er hægari fyrstu árin en hraðari þegar líður á tímabilið (2026-2034).
  • Ekki verður skylda að gera upp losunarheimildir vegna losunar á gróðurhúsalofttegundum sem eru varanlega bundnar með efnafræðilegum aðferðum í vörum og berast því ekki út í andrúmsloftið við venjulega notkun varanna.
  • Endurgjaldslaus úthlutun til flugrekenda mun fara stigminnkandi árin 2024 og 2025 og leggjast af frá og með árinu 2026. Frá þeim tíma munu flugrekendur því þurfa að kaupa allar þær losunarheimildir sem þeir þurfa á að halda. Auk þess að dragast saman árlega í samræmi við línulega samdráttarstuðulinn verður heimildum fækkað um 25% árið 2024 og 50% árið 2025. Frá og með árinu 2026 munu flugrekendur því þurfa að kaupa allar losunarheimildir sem þeir þurfa á að halda. Flugrekendur munu þó frá 2024 til 2030 geta sótt um úthlutun sérstakra losunarheimilda (svokallaðra SAF-heimilda) sem grund­vall­ast á magni sjálfbærs flugeldsneytis (SAF) sem notað er í flugferðum sem heyra undir ETS-kerfið.
  • Frá árinu 2025 skulu flugrekendur vakta og skila losunarskýrslum vegna þátta sem hafa áhrif á loftslagið, annarra en koldíoxíðs. Hér er m.a. átt við köfnunarefnisoxíð, sótagnir, brennisteinssambönd og vatnsgufu. Talið er að áhrif þessara þátta í tengslum við flug séu a.m.k. jafnmikil og áhrif koldíoxíðs. Í árslok 2027 verður tekin ákvörðun um hvort losun þessara þátta muni falla undir ETS.
  • Sjóflutningar hafa verið felldir undir kerfið. Skipafélög skulu standa skil á losunarheimildum vegna losunar koldíoxíðs frá farþega- og flutningaskipum yfir 5.000 brúttótonnum. Skyldan nær til allrar losunar vegna ferða milli hafna innan EES-svæðisins, allrar losunar sem á sér stað meðan skip er í höfn á EES-svæðinu og helmings losunar vegna ferða milli hafnar innan EES-svæðisins og hafnar í þriðja ríki. Uppgjörsskyldan verður innleidd í áföngum. Þannig þarf að gera upp losunarheimildir vegna 40% losunar ársins 2024, 70% losunar ársins 2025 og 100% losunar frá og með árinu 2026. Engum losunarheimildum verður úthlutað endurgjaldslaust til skipafyrirtækja og verða þau því að kaupa allar þær losunarheimildir sem þau þurfa á að halda.
  • Sorpbrennslur skulu vakta losun frá árinu 2024 og skila losunarskýrslum. Í árslok 2026 verður tekin ákvörðun um hvort sorpbrennslur muni falla undir ETS frá árinu 2028.
  • Losun vegna eldsneytisbrennslu í vegasamgöngum, til húshitunar og í smáiðnaði verður felld undir nýtt hliðstætt viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS2). Kerfið mun í það minnsta til að byrja með ekki tengjast hinu viðskiptakerfinu beint og verða boðnar upp sérstakar losunarheimildir í kerfinu. Markmiðið er að draga úr losun vegna vegasamgangna og húshitunar um 43% til ársins 2030 miðað við losun ársins 2005 og vegna smáiðnaðar um 42% á sama tíma. Skyldan til að vakta losun og gera upp losunarheimildir fellur á þá aðila sem afhenda jarðeldsneyti til framangreindrar notkunar, þ.e.a.s. sölu- og dreifingaraðila, og munu þeir aðilar þurfa losunarleyfi. Sölu- og dreifingaraðilar jarðeldsneytis munu þurfa að vakta eldsneytissölu til fyrrgreindra geira og hófst vöktunarskyldan 1. janúar 2024. Skila þarf vottaðri losunarskýrslu árlega. Losun verður gerð upp (með skilum á losunarheimildum) í fyrsta skipti árið 2027 vegna losunar á árinu 2026. Losun vegna eldsneytisbrennslu í ofangreindum geirum mun einnig heyra áfram undir kerfi um skiptingu ábyrgðar (ESR).
  • Ráðstöfun tekna af uppboði losunarheimilda. Fjöldi losunarheimilda sem boðnar verða upp af aðildarríkjunum mun aukast verulega á næstu árum, m.a. vegna útvíkkunar á gildissviði kerfisins til sjóflutninga, vegna CBAM-kerfisins og vegna nýs viðskiptakerfis fyrir vegasamgöngur, húshitun og smáiðnað. Stærstur hluti þeirra heimilda sem gefnar verða út til þessara geira verður boðinn upp, en hluti þeirra mun renna í Nýsköpunarsjóðinn, Nútímavæðingarsjóðinn og Markaðsstöðugleikasjóðinn. Tekjur af uppboðum skulu að verulegu leyti að renna til fjármögnunar á loftslagstengdum aðgerðum. Annars vegar verður þetta gert með fjármögnun verkefna í gegnum Nýsköpunarsjóð og Nútímavæðingarsjóð. Hins vegar eru gerðar ítarlegar kröfur til ESB-ríkja um að ráðstafa tekjum sínum af uppboði losunarheimilda til aðgerða á sviði orkuskipta, loftslagsvænnar tækniþróunar o.fl. Tekjurnar ber jafnframt að nýta til að koma til móts við fyrirtæki og heimili sem þurfa á fjárhagslegum stuðningi að halda til að skipta yfir í nýja orkugjafa og loftslagsvæna tækni. Tekjur af hliðstæða viðskiptakerfinu (ETS2) fyrir vegasamgöngur, húshitun og smáiðnað skal einnig nýta í að takast á við samfélagsleg áhrif viðskiptakerfisins, einkum á heimili, lítil fyrirtæki og samgöngunotendur sem eiga erfitt með að standa undir auknum kostnaði. Nýsköpunarsjóðurinn verður efldur og á hann að styðja við nýsköpun á breiðari grundvelli en áður. Tilgangur sjóðsins er að styðja loftslagsvæna tækniþróun og framfarir í öllum geirum sem heyra undir gildissvið viðskiptakerfisins. Nefndar eru fjölmargar tegundir verkefna sem sjóðurinn getur styrkt og er tiltekið að sérstök áhersla skuli vera á verkefni sem felast í þróun loftslagsvænnar tækni fyrir geira sem heyra undir CBAM-kerfið, framleiðslu endurnýjanlegrar orku, kolefnisföngun og -geymslu (CCS), kolefnisföngun og -nýtingu (CCU), o.fl. Þá verður Nútímavæðingarsjóðurinn efldur, en hlutverk hans er m.a. að nútímavæða orkukerfi og bæta orkunýtni í verr stæðum aðildarríkjum.
ETS-kerfið tók til losunar frá flugi og staðbundinni starfsemi í orkuframleiðslu og iðnaði. Með „Fær í 55“-aðgerðapakkanum var losun vegna sjóflutninga felld undir kerfið, auk þess sem losun vegna eldsneytisbrennslu í vegasamgöngum, vegna húshitunar og smáiðnaðar verður felld undir nýtt hliðstætt viðskiptakerfi (ETS2).

Breytingar á kerfi um skiptingu ábyrgðar (ESR)

Kerfi um skiptingu ábyrgðar á samfélagslosun – eða ESR – tekur til annarrar losunar en þeirrar sem fellur undir viðskiptakerfið, sem sagt til losunar vegna vegasamgangna, húshitunar, smáiðnaðar, landbúnaðar, sjávarútvegs, efnanotkunar og meðhöndlunar úrgangs. Hverju ríki er úthlutaður ákveðinn fjöldi AEA-heimilda sem minnkar línulega hvert ár á tímabilinu 2021-2030 og er úthlutunin ákveðin út frá hagvexti á íbúa og tækifærum og kostnaði við að draga úr losun í viðkomandi landi. Tilgangurinn með mismunandi markmiðum fyrir ríkin er að tryggja sanngjarna skiptingu á milli ríkja. Ríkjum nægir ekki að standa við losunarmörkin árið 2030, heldur er þeim skylt að ná tilgreindu takmarki (sem samsvarar fjölda AEA-heimilda viðkomandi árs) á hverju ári tímabilsins 2021-2030. Þau hafa engu að síður sveigjanleika til að ná markmiðum sínum. Flytja má tiltekinn fjölda AEA-heimilda milli ára, auk þess sem ríkjum er heimilt að eiga viðskipti sín á milli með AEA-heimildir. Nokkrum ríkjum (11 af 29) er heimilt að nýta uppboðsheimildir úr ETS-kerfinu (EUA-heimildir) til að uppfylla skuldbindingar sínar. Þá mega ríki bókfæra kolefnisbindingu á móti eigin losun upp að tilteknu marki að því gefnu að þau uppfylli núlllosunarregluna, þ.e. að samanlögð framtalin kolefnisbinding vegna landnotkunaraðgerða í viðkomandi ríki sé jöfn eða meiri en samanlögð framtalin losun vegna þessara sömu landnotkunaraðgerða. Sé framtalin losun vegna landnotkunar hins vegar meiri en binding þurfa ríki að nýta AEA-heimildir til að uppfylla núlllosunarregluna eða kaupa bindingarávinning af öðrum ríkjum.

Uppfært markmið ESB er að draga úr samfélagslosun á Evrópska efnahagssvæðinu um 40% til 2030 miðað við árið 2005, í stað 30% áður. Áður útgefnum AEA-heimildum allra ríkja verður því fækkað fyrir árin 2023-2030 þannig að markmiðinu verði náð. Sveigjanleikaákvæðin munu gilda áfram, sem þýðir að áfram má flytja tiltekinn fjölda AEA-heimilda milli ára, sem og stunda milliríkjaviðskipti með heimildirnar. Nokkrum ríkjum, þ.á m. Íslandi, er heimilt að nýta uppboðsheimildir í ETS-kerfinu (EUA-heimildir) til að uppfylla skuldbindingar sínar. Einnig mega ríki áfram bókfæra kolefnisbindingu á móti eigin losun upp að tilteknu marki gegn því skilyrði að viðkomandi ríki hafi uppfyllt skuldbindingar sínar gagnvart landnotkunarreglugerðinni (núlllosunarreglan til 2025 og viðeigandi markmið varðandi losun/bindingu 2026-2030). Þetta er þó með þeim takmörkunum að einungis má nota helminginn af leyfðri kolefnisbindingu á tímabilinu 2021-2025. Hinn helminginn má svo nota á tímabilinu 2026-2030.

Kerfi um skiptingu ábyrgðar tekur til samfélagslosunar, þ.e. losunar vegna húshitunar, vegasamgangna, smáiðnaðar, landbúnaðar, sjávarútvegs, efnanotkunar og meðhöndlunar úrgangs.

Breytingar á landnotkunarkerfinu

Landnotkunarkerfið (LULUCF) er kerfi sem nær yfir losun og bindingu sem rekja má til landnotkunar. Losun og binding er talin fram í eftirfarandi flokkum: Nýskógrækt, skógareyðing, skógarumhirða og viðarafurðir, umhirða ræktarlands, umhirða graslendis og umhirða votlendis (hið síðastnefnda þó aðeins frá árinu 2026). Tryggja skal að öll framtalin losun gróðurhúsalofttegunda vegna landnotkunar í ESB-ríkjunum verði kolefnisjöfnuð. Með framtalinni losun er átt við að losun og binding vegna umhirðu ræktarlands og umhirðu graslendis er talin fram sem breyting miðað við meðaltal áranna 2005-2009, og losun og binding vegna skógarumhirðu og viðarafurða er borin saman við svokallað ‚skógræktarviðmið‘ sem ákvarðað er fyrir hvert land fyrir sig. Aðildarríkin þurfa að standast svokallaða núlllosunarreglu sem felur í sér að jafna þarf út með bindingu alla framtalda losun sem stafar af tiltekinni landnotkun. Ef t.d. skógur er ruddur til að nýta landið á annan hátt (t.d. fyrir byggð, vegagerð eða landbúnað) þarf að jafna losunina sem af skógareyðingunni hlýst með nýskógrækt eða með því að bæta umhirðu t.d. ræktarlands eða graslendis. Bókhaldsreglur fyrir losun og bindingu eru staðlaðar, þannig að tryggt sé að mat á því hvort ríki uppfylli núlllosunarregluna sé sambærilegt fyrir alla aðila. Ef framtalin losun vegna landnotkunar er meiri en binding þurfa viðkomandi ríki að kaupa bindingarávinning frá öðru ríki eða skila inn AEA-heimildum sem samsvarar mismuninum og ná þá enn meiri árangri í samdrætti í samfélagslosun. Landnotkunarkerfið tengist því kerfinu um skiptingu ábyrgðar (ESR). Ef framtalin losun er hins vegar minni en bindingin geta ríki bókfært umframbindinguna í kerfinu um skiptingu ábyrgðar upp að tilteknu marki, sem er mismunandi fyrir hvert aðildarríki. Heildarmagnið sem ríki mega samtals bókfæra á þennan hátt er 281,8 milljón tonn. Einnig geta ríki mögulega selt öðrum ríkjum umframbindingarávinning.

Með breytingunum sem urðu með „Fær í 55“-aðgerðapakkanum er framlag landnotkunarflokksins til að draga úr nettólosun aukið verulega. Breytingarnar á kerfinu verða litlar á tímabilinu 2021-2025. Árið 2026 verður hins vegar fallið frá núgildandi framtalsreglum, þ.e. að telja losun og bindingu fram miðað við tiltekin viðmiðunarár og/eða viðmiðunargildi, og í staðinn verður heildarmarkmiði um 310 milljóna tonna nettóbindingu árið 2030 skipt milli ríkja ESB með árlegum kröfum fyrir hvert ríki á tímabilinu 2026-2030. Tilgangurinn með mismunandi markmiðum fyrir ríkin er að tryggja sanngjarna skiptingu á milli þeirra. Við útreikning á markmiðinu fyrir hvert ríki var tekið mið af upplýsingum úr landsbókhaldi hvers ríkis varðandi losun og bindingu vegna landnotkunar, auk þess sem tekið var tillit til hagfræðilegra þátta, breiddargráðu og landslags. Áfram verður hægt að stunda viðskipti með umframbindingarávinning milli landa að því tilskildu að ríki standi við markmið sitt varðandi losun/bindingu. Ríki munu þó ekki geta flutt bindingarávinning frá tímabilinu 2021-2025 yfir á tímabilið 2026-2030.

Landnotkunarkerfið er kerfi sem nær yfir losun og bindingu sem rekja má til landnotkunar.

Breytingar er varða losun frá flugi og millilandasiglingum

Eins og sjá má á myndinni Fær í 55: Aðgerðapakkinn er fjallað um tilteknar uppsprettur losunar í fleiri en einni gerð í „Fær í 55“-aðgerðapakkanum. Til að draga úr losun frá flugi eru t.a.m. gerðar breytingar á ETS-tilskipuninni, CORSIA-kerfið innleitt, breytingar gerðar á tilskipunum um orkuskatta og endurnýjanlega orku og á reglugerð um innviðauppbyggingu vegna óhefðbundinna orkugjafa, auk þess sem ný reglugerð um jöfn skilyrði fyrir sjálfbærar flugsamgöngur (ReFuelEU Aviation) hefur verið samþykkt. Sjálfbært flugeldsneyti (SAF) er fljótandi eldsneyti sem uppfyllir tiltekin sjálfbærniviðmið og sem hægt er að nota í flugi án nokkurra breytinga á innviðum og flugvélum. Um er að ræða annars vegar lífeldsneyti og hins vegar rafeldsneyti. Lífeldsneyti er unnið úr viðurkenndum lífmassa, en rafeldsneyti er hægt að framleiða með samruna koldíoxíðs og vetnis. Koldíoxíðið er þá fengið annað hvort úr útblæstri eða með föngun úr andrúmslofti, en vetnið framleitt með rafgreiningu vatns, þar sem notuð er endurnýjanleg orka. Markmið „ReFuelEU Aviation“-reglugerðarinnar er að auka notkun sjálfbærs flugeldsneytis í flugsamgöngum. Í því augnamiði ber sölu- og dreifingaraðilum eldsneytis að tryggja aukið framboð sjálfbærs flugeldsneytis á flugvöllum. Lágmarksíblöndun SAF mun aukast úr 2% árið 2025 í 70% árið 2050, auk þess sem sett er aðskilið undirmarkmið fyrir hlutfall rafeldsneytis, (sjá mynd Lágmarksíblöndunarhlutfall sjálfbærs flugeldsneytis (SAF) og rafeldsneytis). Þá ber flugvöllum að tryggja nauðsynlega innviði til að hægt sé að afhenda, geyma og dæla sjálfbæru eldsneyti.

Í dag reiða flugrekendur um allan heim sig nánast alfarið á jarðeldsneyti til að knýja flugvélaflotann. Til að hægt sé að draga úr losun í flugi þarf að hraða umskiptum yfir í sjálfbært flugeldsneyti og hreinni tækni í fluggeiranum. Þrátt fyrir að tækni sem gerir flugvélum kleift að nýta rafmagn eða vetni hafi þróast á síðustu árum mun það taka nokkurn tíma áður en hægt verður að beita henni í atvinnuflugi. Ljóst er að hefjast þarf strax handa við að draga úr losun í geiranum þannig að árangur náist fyrir árið 2030. Sjálfbært flugeldsneyti mun leika lykilhlutverk á þeirri vegferð og því er nauðsynlegt að auka framboð og notkun þess á flugvöllum í Evrópu. Sérstaklega gæti notkun rafeldsneytis stuðlað að samdrætti í losun frá fluggeiranum en telja má ólíklegt að það nái merkjanlegri markaðshlutdeild fyrir árið 2030 án þess að settar verði kröfur um íblöndun og framboð. Þar sem „óhefðbundið“ eldsneyti (þ.e. líf- og rafeldsneyti) er talsvert dýrara en „hefðbundið“ flugeldsneyti (þ.e. jarðeldsneyti) þarf að jafna stöðuna. Það er gert annars vegar með því að setja reglur um íblöndun og framboð sjálfbærs flugeldsneytis (ReFuelEU Aviation) og hins vegar með því að auka álögur á hefðbundið eldsneyti (breytingar á tilskipun um orkuskatta). Þannig má búast við að fjárfestingaráhætta minnki og að möguleikar á aukinni framleiðslu „óhefðbundins“ eldsneytis aukist. Þrátt fyrir þessar aðgerðir má vænta að íblöndun líf- og rafeldsneytis muni koma til með að auka eldsneytiskostnað flugrekenda. Því eru enn fremur settar reglur til að koma í veg fyrir eldsneytisflutninga frá svæðum þar sem kostnaður er lægri. „ReFuelEU Aviation“-reglugerðin tengist tilskipun um endurnýjanlega orku (RED II), einkum hvað varðar sjálfbærniviðmið sem SAF þarf að uppfylla. Reglugerðin er einnig í góðu samræmi við ETS-tilskipunina sem inniheldur einmitt hvata fyrir flugrekendur til að nota sjálfbært flugeldsneyti þar sem flugrekendur þurfa ekki að skila inn losunarheimildum vegna losunar sem hlýst af brennslu þess. Einnig geta flugrekendur sótt um úthlutun svokallaðra SAF-heimilda á árunum 2024-2030, en fjöldi úthlutaðra SAF-heimilda mun grund­vall­ast á magni sjálfbærs flugeldsneytis (SAF) sem notað er í flugferðum sem heyra undir ETS.

Til að draga úr losun vegna sjóflutninga hafa sjóflutningar verið felldir undir ETS-kerfið og ný reglugerð verið sett um notkun endurnýjanlegs eldsneytis og lágkolefnaeldsneytis (RLF) í sjóflutningum (FuelEU Maritime). Auk þess hafa verið gerðar breytingar á reglugerð um innviðauppbyggingu vegna óhefðbundinna orkugjafa, tilskipun um orkuskatta og tilskipun um endurnýjanlega orku. Þetta samspil aðgerða er talið nauðsynlegt til að unnt sé að takast á við markaðsbresti sem standa í vegi fyrir mótvægisaðgerðum í þessum geira. Aðgerðunum er ætlað að tryggja að samdráttur í losun náist á hagkvæman hátt og að verð á sjóflutningum á vörum endurspegli þau áhrif sem þeir hafa á umhverfi, heilsu fólks og orkuöryggi.

Markmið „FuelEU Maritime“-reglugerðarinnar er m.a. að greiða fyrir langtímafjárfestingum sem lúta að endurnýjanlegu eldsneyti og lágkolefnaeldsneyti til notkunar í sjóflutningum með því að auka kröfur um notkun slíks eldsneytis. Í því augnamiði ber öllum skipum yfir 5.000 brúttótonnum að draga úr losunarkræfni skipaeldsneytis um 2% árið 2025 miðað við árið 2020. Þetta hlutfall verður 80% árið 2050, sjá mynd Samdráttur í losunarkræfni skipaeldsneytis frá 2025-2050. Kröfurnar um losunarkræfni gilda fyrir alla þá orku sem notuð er í siglingum milli hafna á EES-svæðinu en helming þeirrar orku sem notuð er í siglingum milli hafnar innan EES-svæðisins og hafnar í þriðja ríki. Þá er gert ráð fyrir að árið 2030 skuli skip yfir 5.000 brúttótonnum nýta landtengingar til að mæta raforkuþörf sinni þegar þau liggja í höfn, nema þau geti nýtt aðra losunarfría valkosti. Gert er ráð fyrir að aðgerðirnar leiði til aukinnar framleiðslu og notkunar á RLF og hvetji til tækninýjunga í geiranum.